Skinfaxi - 01.11.1954, Blaðsíða 28
124
SKINFAXI
brúin, er liún samt engan veginn neitt smásmíði.
Þetta er liengibrú. Hún er bart nær 3 km á lengd, en
brúarliafið milli turnanna er undir það hálfur annar
km, og mun það vera lengsta hrúarhaf á jörðinni.
Hæð turnanna yfir sjávarmál er 746 fet. Brúin er
mjög falleg, og mér finnst hún heilsteyptara mann-
virki en stærri brúin. Hún er öll rauðmáluð, og gerir
það hana enn tilkomumeiri, þegar sólin glampar á
hana. llún var einnig fullgerð árið 1937, og kostaði
hún 33 milljónir dollara. — Yfirverkfræðingur við
báðar þessar brúarframkvæmdir var amerískur mað-
ur af sænskum uppruna, Swanson að nafni.
Þegar ég ligg hérna uppi í hlíðinni og virði fyrir
mér öll þau geysilegu mannvirki, sem gerð liafa ver-
ið umhverfis þennan flóa, brýrnar, skrautgarðana,
byggingarnar, liafnir og uppfyllingar, verður mér
ljóst hvílíkt ógnarfjármagn þurft hefur til þess að
koma þessu öllu í kring. En þetta er líka auðugt land.
í raun og veru má segja, að móðir náttúra hafi dekr-
að við Kaliforníu, beinlínis ausið yfir hana af gnægt-
um sínum. Loftslagið nálgast það að vera fullkomið,
landslagið er fjölbreytt og heillandi, gróðrarríkið stór-
kostlegt. Gull er þar mikið i jörðu, og margir aðrir
málmar í ríkum mæli, og þar eru einnig hinar mestu
olíulindir. Það er því næsta eðlilegt, að Kaliforníu
hafi verið valin mörg falleg nöfn, svo sem Hið gullna
fylki, El Dorado, (óskalandið) o. s. frv. Og einkunn-
arorð fylkisins er runnið frá gullleitartímunum,
gríska orðið Eureka. (Ég lief fundið það.)
Ég hrekk upp úr hugleiðingum minum og lestri leið-
arvísisins við það, að ég heyri í bíl, og þegar ég lit
upp, sé ég, að áætlunarbíllinn rennur inn i þorpið. Ég
tek undir mig stökk. Það vi'll mér til happs, að liann
stanzar fáar mínútur í miðju þorpinu, svo að ég næ
í hann, lafmóður af hlaupunum.
Eftir örstund er ég aftur á miðri brúnni yfir Gullna