Skinfaxi - 01.11.1954, Síða 52
148
SKINFAXI
því án stimpinga. í byrjun vikunnar skal ormahreinsa tripp-
ið. Heygjöf 3 kg i mál af töðu eða góðu bakkaheyi. Nœstu viku
skal fara að venja trippið við bei/.li. Fyrst er það beizlað
inörgum sinnum, eftir að það hefur étið upp, og síðan er það
látið liafa beizlið á sér fram að næstu gjöf. Eftir 3—4 daga
er trippið farið að venjast beizlinu. Þá er farið að teyma
trippið liti. Fyrstu 2—3 dagana skal teyma trippið með tömd-
um og vönum liesti. Kenna skal trippinu að ganga við hlið
mannsins. Þá þarf að þjálfa það í að beygja greiðlega til hlið-
anna, stanza og liefja göngu eftir tilsögn.
Nota skal upphrópunina „Hoh“ þegar farið er af stað, eða
orðið „fram“. En þegar stanzað er má segja „kyrr“ eða blístra,
sem er fullt eins gott. Avallt skal þó nota söniu upplirópunina,
það má aldrei bregðast. Trippin læra þá furðu fljótt að lilýða.
Það, sem temjandinn á að kenna trippinu á 2. vetri, er eft-
irfarandi:
1. Að teymast greiðlega frá báðum hliðum og ganga við lilið
mannsins, scm teymir. Hlýða greiðlega, þegar beygt er
til hliðar og hlýða strax livatningum, bæði þegar lagt er
af stað og þegar stanzað er.
2. Að standa reistu og kyrru meðan maðurinn stendur kyrr.
3. Að teymast vel á liesti.
4. Að standa kyrru, þegar teknir eru upp á því allir fætur.
5. Að standa kyrru, þegar lagður er á það hnakkur, og einnig
að teymast greiðlega með ungling berbakt.
3. Tamning hesta 4—6 vetra:
Hesturinn fær venjulega meðferð fram til 1. febrúar. Þá
er liann tekinn á hús. Fyrst er honum gefið meðalgott úthey
i 3—4 daga, en þá má smátt og smátt blanda töðu eða öðru
kjarngóðu lieyi i fóðrið, og bezt er að ala á góðri töðu, sem
þó má vera dálítið bliknuð (gerjuð). Eftir viku á heygjöfin að
vera orðin 3.5 kg í mál. Á G. eða 7. degi er hrossið orma-
hreinsað. Það skal gert að morgni fyrir gjöf, og ekki má
gefa þvi fóður fyrr en 3 klst. eftir inngöfina.
1. Áður en farið cr að temja hestinn til reiðar, skal hann
hljóta alla sömu meðferð og trippi á 2. vetri, eins og
henni er lýst hér að framan, og liann þarf að kunna öll
þau 5 atriði, sem þar eru fram tekin.
2. Þegar hesturinn hefur vanizt hnakk og beizli, er farið að
ríða honum. Fara skal rólega að öllu fyrst og ríða stutt
daglega. Hálftíma æfing á dag fyrstu vikuna er liæl'ileg.
3. Fvrstu 2 vikurnar skal leyfa hestinum að fara á hverjum