Skinfaxi - 01.07.1956, Síða 15
SKINFAXI
63
Sólar-brennsluofn, enn á tilraunastigi.
nefna, að i Bandarikjunum einum þyrfti að brenna
einuin milljarði og tvö hundruð milljónum tonna af
kolum til að framleiða ])á orlcu, sem þarf til upphitun-
ar. Nú er þvi óskynsamlegt að eyða kolum, þar sem
vægari orkugjafi nægir. Hér gæti sólarljósið sparað
mannkyninu ógrynni af eldsneyti.
Sama má segja um lieitt vatn til heimilisnota; þar
gæti sólarhitinn komið að fullum notum. Þetta vatn
þarf ekki að vera heitara en 60°. 1 Florida í Banda-
ríkjunum, sem er sólríkt fylki, er þegar farið að nota
sólarorkuna til þessara hluta. Þar fá fimmtíu þúsund
heimili heitt vatn á þennan liátt. Aðferðin við hitun-
ina er mjög einföld. Tækið, sem safnar sólargeislun-
um, er málmplata, svartmáluð að ofan, en að framan
er gler til að koma í veg fyrir hitatap. Að baki jilöt-
unnar eru þunnar pípur, sein vatn rennur sifellt um.
Það hitnar á leiðinni, og er síðan leitt á venjulegan
hátt í einangraða geyma. Hér er að visu um sólríkt