Skinfaxi - 01.07.1956, Side 29
SKINFAXI
77
xel sýonóion:
íþróttir á landsmóti UMFÍ á Akureyri
Landsmót U.M.F.Í á Akureyri í fyrravor var í alla staði mjög
glæsilegt. Þar fylgdust að góðar aðstæður, nákvæmur undir-
búningur, röggsemi i framkvæmdustjórn, gott veður og glæsi-
leg íþróttaæska. Allt þetta gerði mótið eftirminnilegt öllum,
sem þar voru.
Landsmótin hafa verið lyftistöng iþróttum og öðru félags-
lífi meðal ungmennafélaganna. Þetta er og einn höfuð tilgang-
ur landsmótanna. Segja má, að landsmótin hafi í alla staði
verið einliverjar glæsilegustu og skemmtilegustu samkomur,
sem haldnar hafa verið á undanförnum árum. Á Akureyri
voru aðstæður allar mjög góðar, vel var búið að iþróttafólk-
inu, það dvaldi í heimavist Menntaskólans, sem er i mikilli
og veglegri byggingu. Hefur aldrei fyrr verið svo góð aðstaða
til að hýsa liinn stóra hóp keppenda, er fer ávallt vaxandi.
Mótsdagana voru keppendur i fæði í Hótel Varðborg. Það
fer að verða þörf á að endurskoða það ákvæði, að mótið láti
keppendum í té 2 máltiðir mótsdagana. Þetta er orðinn það
mikill kostnaður, þar sem keppendur eru orðnir svona marg-
ir, að ofraun er einum aðila. Ég held, að fyrr eða siðar verði
að hverfa frá þessu, cn láta hvert héraðssamband sjá um sig.
Aðstaða til keppni á Akureyri er mjög góð, þar er einn
bezti íþróttavöllur á landinu. Grasbrekka liggur að vellinum
öðruin megin, og er það hið beztá áhorfendasvæði. Völlurinn
er mjög góður grasvöllur innan 400 m vel byggðra hlaupa-
brauta, sem að vísu virðast við fyrstu sýn nokkuð harðar, sér-
staklega fyrir þá, scm æfa og keppa að staðaldri á grasi.
Árangurinn i hlaupunum gefur til kynna, að hlaupurunum hef-
ur fallið við brautirnar.
Á vellinum gat farið fram samtímis hlaup, stökk og liand-
knattleikur, og ekki veitti af að nota timann. Á vellinum var
keppt í 18 iþróttagreinum, auk þess fóru þar fram (5 leikir i
handknattleik. ÖIlu þessu var ætl-að 9 klukkustundir á tima-
seðli mótsins. Maður efaðist um, að hægt væri að framfylgja
því, en það tókst með prýði, og er það út af fyrir sig afrck.
Þar reyndi á stjórnsemi íþróttafulltrúa, Þorsteins Einarsson-
ar, sem stjórnaði frjálsíþróttakeppninni, en hann hafði á að
skipa traustu starfsliði við hverja íþróttagrein. Sömuleiðis