Skinfaxi - 01.07.1956, Side 38
86
SKINFAXI
/-------:------------------------------------
STARFSÍÞRÓTTIR
♦ ♦ ♦
v.___________________________________________s
GARÐURIIMIM MIIMIM
STEFÁIM ÓLAFUR JÓIMSSOIM, kennari,
tók saman
Garðstæðið valið.
Garðurinn þinn ætti að vera nærri heimili þínu, þó þarf
stundum að hafa stærri garða nokkuð langt frá. Bezt er þá
að hafa þar grænmeti, sem ekki er notað nýtt upp úr garðin-
um til heimilisins, en hafa þá lítinn garð heima, þar sem
liægt er að hafa grænmeti við hendina allt sumarið.
Garðstæðið á að vera slétt og þurrt. Bezt er að á því sé
votnshalli, svo að ekki standi uppi vatn í garðinum eftir regn.
Velja ætti garðstæðið í skjóli, ef mögulegt er, en gæta þess þó
alltaf að það sé á sólríkum stað.
Gerðu teikningu af garðinum.
Til þess að nota garðrýmið sem bezt, er sjálfsagt að gera
teikningu af garðinum. Bezt er þá að teikna inn á kortið
liverja röð nákvæmlega og sýna hvað á að vera þar og hve
langt á að vera á milli raða. Skrifaðu svo sáningartíma hverr-
ar tegundar og hve langt á að vera á milli plantnanna í röð-
inni. Allar raðir eiga að vera beinar og samhliða. Ef dráttar-
vél er notuð, er bezt að raðirnar séu langar, en sé handplægt
er betra að raðirnar séu stuttar.
Gættu þess að setja ckki smærri plönturnar í skugga hinna
stærri.
Ábendingar.
Settu fjölærar jurtir svo sem rabarbara, rifsber o. fl. öðr-
um megin í garðinn, svo að l«ð sé ekki fyrir þegar plægt er,
og fljótvaxnar tegundir saman hlið við hlið, svo að þú get-
ir tvísáð í þann liluta garðsins. Gættu þess, að nógu langt sé
milli plantnanna, svo að þær hafi nægilegt vaxtarrými. Grisj-