Skinfaxi - 01.07.1956, Page 39
SKINFAXI
87
’aðu, ef þess gerist þörf. Af blaðsalati, grænkáli, spinati og
steinselju má taka blöð, án þess að slíta upp plöntuna, þcss
vegna þarf ekki að sá eins miklu af þessum tegundum, því að
þær geta vaxið áfram, þótt tekið sé af þeim til matar.
Notaðu garðlandið vel.
Ef þú hefur lítið garðland, þá er um að gera að vanda vel
til ræktunarinnar.
Fljótvöxnum tegundum má sá tvisvar í sama blett. Einnig
má sá fljótvöxnum tcgundum inn á milli raða seinþroska
plantna, sem þurfa mikið vaxtarrými. Taka þarf svo þessar
fljótvöxnu tegundir burtu áður en rætur binna plantnanna eru
orðnar mjög stórar.
Ræktaðu hollt grænmeti.
Ræktaðu grænmeti, sem þér og fjölskyldu þinni finnst gott,
inniheldur mikið af næringarefnum og á vel við ræktunar-
skilyrði þín. Veldu afbrigði, sem bezt henta þeim árstima, sem
ræktunin fer fram á og ekki eru næm fyrir jurtasjúkdómum.
Athugaðu jarðveginn.
Veldu garðstæði þar sem mold er góð, þó má nota sand- cða
mýrajarðveg, ef annars er ekki kostur. Berðu nægan og réttan
áburð i garðinn, helzt bæði búfjáráburð og tilbúinn áburð.
Áburðarmagn.
Ivröfur tegundanna eru breytilegar. Káljurtir eru t. d. mjög
frekar á áburð; kartöflur, salat og lireðkur eru nægjusamari,
og þurfa því minni áburðarskammt. Hentugt er að nota bú-
fjár- og tilbúinn áburð. Hæfilegt magn fyrir káljurtir, gulræt-
ur og rófur er 5—10 kg búfjáráburður (mykja) + 15—20 g
tilbúinn garðáburður á flatareiningu (m2).
Fyrir salat, hreðkur og spinat 3—4 kg búfjáráburður + 10
—15 g garðáburður á flatareiningu. Gott er að gefa seinþroska
jurtum 1—3 aukaskaminta af tilbúnum garðáburði eða kalk-
saltpétri yfir vaxtartímann, 10—20 g á hvern lengdarmetra (1
hnefa) að liverju sinni. Gættu þess, að ekkert fari á blöðin.
Notaðu aldrei alveg nýjan búfjáráburð.
Dreifing áburðar.
Berðu búfjáráburðinn i garðinn svo að segja um leið og