Skinfaxi - 01.07.1956, Page 44
92
SIvINFAXI
að ekki verði keppt í starfsíþróttum. Hér fer á eftir tillaga
landsmótsnefndar um íþróttagreinar, sem keppt verði í á
mótinu:
Fyrir karla: 100 m hlaup, 1500 m hlaup, 5000 m hlaup og
1000 m boðhlaup. Hástökk, langstökk, kúluvarp, og kringlu-
kast. — Fyrir konur: 80 m hlaup og 5x80 m boðhlaup. Einnig
handknattleikur kvenna. — Nú er af hálfu nefndarinnar á-
kveðið að keppt verði í knattspyrnu i fyrsta sinn á lands-
mótinu. Hvernig þeirri keppni verður hagað er ekki fyililega
ákveðið ennþá. Sennilega verður að haga keppninni þannig,
að til úrslita á mótinu keppi aðeins beztu félög úr hverjum
fjórðungi, eða að viðhöfð verður útsláttarkeppni til að tak-
marka leikjaföldann. Ákveðin er bændaglíma, 25 í hvoru liði,
annars vegar verður Héraðssambandið Skarphéðinn, hins veg-
ar önnur héraðssambönd sameinuð. Sambandsráðsfundur
UMFl verður haldinn í haust, þar verður endanlega gengið
frá því í hvaða íþróttagreinum verður keppt á mótinu, þetta
eru eins og fyrr segir tillögur landsmótsnefndarinnar. Hér-
aðssamböndin þurfa að senda tillögur um breytingar á dag-
skrá íþróttamótsins til iandsmótsnefndarinnar fyrir 1. sept-
ember i haust.
Ungmennafélagar, sameinumst um að gera 50 ára afmælis-
mót UMFf sem allra glæsilegast!
A. J.
Sundmót Skarphéðins.
Halclið í Hveragerði 3. júní 1956.
100 m bringusund karla:
1. Þórir Sigurðsson, Umf. Biskupstungna, 1:28,3 mín.
2. Sveinn Sveinsson, Umf. Hrunam. 1:31,7 mín.
3. Gísli Auðunsson, Umf. Ölfus, 1:32,1 mín.
200 m bringusund Jcarla:
1. Þórir Sigurðsson B. 3:18,7 mín.
2. Páll Sigurþórsson Ölf. 3:22,0 min.
1000 m fr. aðferð karla:
1. Bjarni Sigurðsson Ölf. 17:33,3 mín.
2. Þórir Sigurðsson B. 18:26,6 mín.
3. Páil Sigurðsson Ölf. 19:39,0 mín.