Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Page 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Page 11
um bann gegn dragnótaveiði í landhelgi, í Fisk- veiðasjóð. Þær tekjur sjóðsins hafa verið mjög litlar hingað til, aðeins 1.3 þús. kr. Fiskveiðasjóðsgjald. Á árunum 1907 til 1919 gengu 10% af útflutningsgjaldi af síld, sem nam kr. 0.50 af hverri síldartunnu, til Fisk- veiðasjóðs. Skyldi því fé varið til eflingar sild- arútvegi innlendra manna. Tekjur sjóðsins af þessu útflutningsgjaldi námu 116.5 þús. jvr. á tímabilinu, en á sama tíma var varið 90.5 þús. kr. úr sjóðnum til eflingar síldveiðunum. 1 lögum Fiskveiðasjóðs frá 1930 var ætlast til að visst hundraðsgjald af útfluttum sjávar- afurðum rynni til sjóðsins. Þetta gjald var á- kveðið með sérstökum lögum á sama ári %% af andvirði hverskonar fiskafurða, sem út eru fluttar, og skal innheimt þar til höfuðstóll sjóðs- ins nemur 8 milj. kr. — Loks var ákveðið í lögum Fiskveiðasjóðs frá 1941, að 14 hluti þess útflutningsgjalds, sem ríkissjóður tekur árlega af sjávarafurðum, skuli ganga til Fiskveiða- sjóðs. Sjóðurinn verður fyrst aðnjótandi þeirra tekna nú í ár. Útflutningsgjaldið samkv. lögun- um frá 1930 nam samt. 605.6 þús. kr. til árs- loka 1941. Skuldaskilasjóður. Árið 1935 var Skuldaskila- sjóður vélbátaeigenda stofnaður í sambandi við Fiskveiðasjóð. Skyldi Fiskveiðasjóður annast skrifstofuhald fyrir Skuldaskilasjóð, en eignir hans að renna í Fiskveiðasjóð, jafnóðum og út- lánin afborguðust. Til ársloka 1941 námu greiðslur Skuldaskilasjóðs til Fiskveiðasjóðs 850.4 þús. kr., en útgjöld hans vegna Skulda- skilasjóðs 51.4 þús. kr. Hreinar tekjur Fisk- veiðasjóðs af þessum liðum hafa því numið tæp- um 800 þús. kr. Ýmsar tekjur. Tekjur þær, sem þar eru færðar, eru sem hér segir: 1920 hagnaður af kaupum ríkisskuldabréfa 3.2 þús. kr. 1926 á- góði af skuldabréfum Reykjavíkurhafnar 8.1 þús. kr. 1931—’38 tillög til varasjóðs og veð- tryggingasjóðs 68.5 þús. kr. — og 1941 gengis- hagnaður á danska láninu 97.9 þús. kr. — Sam- kvæmt lögum Fiskveiðasjóðs frá 1930 skyldi hver lántakandi sjóðsins greiða 1% af lánsupp- hæðinni í varasjóð, um leið og hann tæki lánið. Stjórn sjóðsins var auk þess heimilt, að leggja árlegt aukagjald á lán með veði í skipum, sem næmi 14%. — Þessi aukagjöld, sem þýddu raun- verulega ekkert annað fyrir lántakendur en hækkaða vexti, voru felld niður með lögum Fisk- veiðasjóðs frá 1938. tijöldin. Gjöldin þurfa lítilla skýringa við, umfram þær athugasemdir, sem gerðar hafa verið við þau í sambandi við tekjurnar. Þó er rétt að gera nokkra grein fyrir fyrsta gjaldaliðnum, styrkjunum. í lögum Fiskveiðasjóðs frá 1905 og reglu- gerð hans og skipulagsskrá frá 1906 er gert ráð fyrir styrk- og verðlaunaveitingum úr sjóðn- um. Samkv. skipulagsskrá mátti árlega verja allt að 3000 kr. af tekjum sjóðsins til styrk- veitinga og 500 kr. til verðlauna. Styrk mátti veita ungum mönnum til að kynna sér nýjungar í sjávarútvegi erlendis og til útgáfu tímarits um sjávarútvegsmál. Verð- laun mátti veita fyrir framúrskarandi atorku og eftirbreytnisverðar nýjungar í útgerð. Utan- fararstyrk skyldi ekki veita hærri en 600 kr. og ekki lægri en 100 kr. Lægri verðlaun en 50 kr. skyldu ekki veitt, en hámark þeirra var ekki ákveðið. — Þessum ákvæðum laganna um hámark styrkveitinga hefir ekki verið fylgt. Hins vegar hafa aldrei verið veittar hærri upp- hæðir úr sjóðnum í þessu skyni á ári, en mælt er fyrir í lögunum, þ. e. 3 þús. kr. Verðlaun hafa aldrei verið veitt úr sjóðnum, en styrkir af einhverju tagi öll árin, nema 1910, 1911 og 1916. Árið 1916 má þó telja að sams- konar styrkur hafi verið veittur og árin á und- an og eftir. Á þessum árum var aðeins veittur styrkur til tímaritsins „Ægir“, kr. 200.00 á ári, en 1917 var styrkurinn kr. 400.00. Alls hafa verið veittar 36.5 þús. kr. í styrki úr sjóðnum. Styrkveitingarnar hafa aðallega verið þrennskonar: 1. Styrkur til útgáfu tíma- rits, 2. ferðastyrkir og 3. námsstyrkir. IJtgáfustyrkur. Tímaritið Ægir hefir notið styrks úr Fiskveiðasjóði öll árin, nema 1910 og 1911. Á árunum 1913—’21, 1915 og 1934—'41 voru engir aðrir styrkir veittir úr sjóðnum. Alls hefir tímaritið fengið 15.6 þús. kr. styrk úr sjóðnum, og hefir hann numið eftirfarandi upp- hæðum á ári: 1907—’09 1912—’21 1922—’24 1925—’'30 1931—’41 kr. 200.00 — 200.00 — 500.00 — 1000.00 — 500.00 Ferða- og námsstyrkir hafa verið, sem hér segir: Styrkir veittir mönnum til: Að sækja mótorsýningu í Bergen 1907 ........................ kr. 1100.00 Að kynnast snurrivoðarveiðum 1907 ......................... — 200.00 Að sækja fiskveiðasýningu í Þrándheimi 1908 ............... — 2000.00 V1 KIN G U R 11

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.