Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Page 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Page 17
af stað. Kvöldið áður gaf skipstjórinn okkur aura til að fara á „Karneval“ og gerði það til að hafa okkur góða. Við vorum óánægðir yfir að fara og hefðum betur ráðið, eins og síðar kom í ljós. Ég minnist þess að skammt frá okk- ur lá rússnesk skonnorta, sem líka var lek og neituðu skipsmenn að halda á haf út og sneru við rétt fyrir utan höfnina. En við héldum á- fram og hrepptum ofviðri í Biskayaflóa. Var veðrið með þeim ósköpum að við bundum stýr- ið fast í 14 sólarhringa og lágum til drifs. Það má nærri geta að við urðum að taka til við dælurnar. Skammt frá okkur sáum við allstórt gufuskip farast, en við gátum ekkert gert til bjargar. Loks komumst við til Plymouth í Eng- landi og þar var skipið „fóðrað“, sem kallað var. Var það gert með þeim hætti að brytjaður hálmur var látinn í poka en gjörð í pokaopið, sem hélt því opnu. Pokinn var síðan dreginn undir skipið og saugst hálmurinn þá upp í rif- urnar á byrðingnum. Auðvitað var þessi „fóðr- un“ engin viðgerð, enda var skipið strax orðið hriplekt, er við komum úr höfn. Er út í Norður- sjóinn kom á leið til Kalmar lentum við í vest- angarði og stórhríð og var ekki viðlit að við gætum komizt fyrir Skaga. Skipstjórinn var mikið drukkinn að vanda og Þjóðverjarnir urðu veikir og fóru í koju. Var svo haldið skipsráð og stakk ég upp á því að snúa aftur við til Englands og var horfið að því ráði. Lensuðum við alla leið til Grimsby og var farmurinn þar losaður allur úr skipinu en það sett í dokk. — Koparhúð var utan á byrðingnum og var hún rifin af og borgaðist með því viðgerðin. Um miðjan maí lögðum við aftur af stað til Kalm- ar og komumst þangað klaklaust. Ég borgaði skipstjóranum, þegar þangað kom, 70 kr. til að losna af skipinu. Afdrif Elise Hoy urðu þau, að skipið var dæmt- ósjófært og komst aldrei úr Kalmar-höfn. Ég var allshugar feginn að losna af þessari gömlu manndrápsfleytu og fór til Danmerkur aftur eftir 13 mánaða útivist. Þar fékk ég skip- rúm sem 3. stýrimaður á skipinu Patria, sem Köbenhavnerselskabet átti. Um sumarið 1904 og fram á vor 1905 sigld- um við frá Lulá í Svíþjóð til Rotterdam í Hol- landi og Emden í Þýzkalandi með járngrýti. Eftir 3ja mánaða veru á Patria fór ég yfir á skipið Gallia, sem Köbenhavnerselskabet át.ti einnig og var það skip þá statt í Amsterdam. Fórum við þaðan til Hamborgar og tókum farm en sigldum síðan til Wilmington á austurströnd Ameríku og þaðan til Port Limmon, en sigld- um svo allan veturinn milli New York og Cuba með sykur. Um sumarið hurfum við heim og vorum í siglingum á Eystrasalti. Um veturinn 1905 kom einkennilegt atvik fyrir okkur. Við áttum þá tvenn jól, en það vildi svo til að við fórum frá Kaupmannahöfn rétt eftir jólin áleiðis til Libau í Eystrasalts- löndunum, en þar voru jólin haldin á rússneska vísu 13 dögum seinna en í Danmörku eða í janú- ar 1906. Meðan við vorum í höfn fórum við til að hlusta á guðsþjónustu í skandinavisku kirkj- unni í Libau, en þegar messan stóð sem hæzt heyrðum við skot og ólæti. Óeirðir höfðu þá brotist út í borginni og voru þær all-magnaðar. Ekki máttum við fara út úr kirkjunni fyrr en daginn eftir og urðum að dúsa þar alla nóttina. Þegar við komum niður að skipmu um morgun- inn lágu tvö lik á bryggjunni og þegar vio héld- um úr höfn dundi skothríð á skipmu og munu byltingamennirnir ekki hafa viljað að skip með matvæii innanborðs færi úr höfn. Miðuðu þeir á brúna og hafa auðsjáanlega ætlað að skjóta skipstjóra og hafnsögumann. Siöan fórum við enn á ný til Ameríku og sigldum milli Mexiko og New Orieans. Flutt- um við manillagras frá lviexiko tii New Orleans, en fluttum til baka kýr, svín og hænsni og alls- konar annað dót. Sá var galli á þessum ferðum, að í Mexiko var moskito-fluga, sem ber með sér gulu-veiki, og urðum við að vera í sóttkví 24 klst. áður en við fórum frá Mexiko og síðan aftur í 38 stundir í mynni Missisippi áður en við gátum komizt í höfn í New Orleans. Ann- ars hefi ég aldrei lifað skemmtilegri siglingu en þessa. Missisippi er, eins og kunnugt er, eitt mesta stórfljót heimsins. Það er kolmórautt og ískalt, líkt og Jökulsá á Fjöllum, enda kemur fljótið undan háum snæviþöktum fjöllum. Meðfram ánni var á þessum tíma hálfgerður frumskóg- ur víðasthvar og mátti sjá þar stórar hjarðir villisvína, sem leituðu til fljótsins til að fá sér að drekka. Svo voru með nokkru millibili þorp og stórir búgarðar. Ekki er hægt að hrósa skipsmönnum á Gallia í þessari ferð. Yfirleitt var ekki hægt að fá nema úrkastsmenn til að fara í svo langar ferðir, enda var mannvalið slæmt. f Mexiko fengu skipsmenn vont vín til drykkjar og misstu stundum vitið í ölæði, og varð sérstaklega eitt sinn út af því hættulegur árekstur. Sumarið 1906 vorum við svo enn í ferðum á Eystrasalti. Við fluttum frá Riga til Hollands 25 álna löng tré, sem notuð voru í húsagrunna í Hollandi, en þar er jörð víða svo gljúp, að reka verður slík tré niður áður en nógu trygg undirstaða fæst til húsagerðar. Um haustið tók- um við kol og fluttum þau til Livorno, en þaðan fórum við með skipið tómt inn í Svartahaf allt til Novorossisk. Alla leiðina gegnum Miðjarð- VIKINGUR 17

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.