Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Page 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Page 23
J. G. Dyer stýrimaður: Ef.tirfdT.andi grein er telcin úr hinu þekkta, ameríska tímariti Golliers. Lýsir hún mæta vel hættum þeim, sem eru á vegi skipalestanna, sem til Rússlands fara. Með skipalest til Rússlands Við létum úr höfn með innsiglaðar fyrirskip- anir um ákvörðunarstað, en farmurinn var greinilega merktur, þannig að hver sem var gat séð, að hann átti að fara til Rússlands; bæði hafnarverkamennirnir og vörubílstjórarn- ir, sem fluttu hann niður að höfninni, vissu hvert vörurnar áttu að fara, áður en við feng- um nasasjón af því. En okkur var nú nokkuð sama. Við vorum nýkomnir úr ferð um Cariba- hafið, og þar var skipið okkar skotið í kaf með tundurskeyti kafbáts, og þrátt fyrir það, þó okkur tælíist að sökkva kafbátnum áður en við þurftum að yfirgefa skipið, vorum við enn fjúk- andi reiðir. Enginn af skipshöfninni hafði áð- ur siglt í skipalest. Við höfðurn ekki hugmynd um hvað slíkt var. Við sameinuðumst. stórri skipalest í höfn á austurströndinni, og fórum næsta dag til ann- arar hafnar, en þar lágum við í hálfan mánuð fyrir akkerum og biðum eftir fyrirskipunum. Loksins komu þær, og.við stefndum í norður. I tvo daga samfleytt var svarta þoka, svo að ekki sást út úr augunum. Maður gat tekið í mann, sem stóð við hlið manns á þilfari, án þess að geta séð framan í hann. Eina leiðin til þess að halda stöðu sinni í skipalestinni, var að gefa hinum skipunum merki með gufuflaut- unum. Sunnudagur rann upp heiðskír og með slétt- um sjó. Stríðið virtist víðs fjarri. Það reyndist h'ka svo þann dag og nóttina eftir, en á mánu- dagsmorgun sáum við að þýzkur Dornierflug- bátur fylgdi okkur eftir. Þessi flugbátur, eða aðrir slíkir, héldu áfram að njósna um okkur, þangað til við sáum strendur Rússlands, og hélt sig alltaf svo langt undan, að byssur okkar drógu ekki. Okkur líkaði satt að segja ekki að hafa þenna risafugl stöðugt á eftir okkur. Þegar skyggni er illt, fara ekki sprengjuflug- vélarnar til árása, því þá eru þær of nærri byss- um okkar, þegar þær koma niður úr skýja- þykkninu. Og þar sem nokkuð var skýjað þenna dag, komu sprengjuflugvélarnar ekki. Við vor- um samt reiðubúnir við byssurnar. Og þær komu, þegar skýjunum létti. Loftvarnaskipið í miðri lestinni hafði dregið svartan fána að hún, það þýddi, að við gætum átt von á árásum, og við stóðum við byssurnar og gláptum upp í loftið. Allt í einu sáum við átta stórar Focke-Wulf flugvjelar, sem komu fljúgandi lágt yfir sjón- um. Þegar þær voru komnar nálægt skipalest- inni, dreifðu þær sér í tvo flokka og svifu yfir okkur, stöðugt hærra og hærra. Okkur fannst flughæfni þeirra næstum ósvífin. Allt, sem við gátum gert, var að bíða pg horfa á þessa bölv- aða hræfugla. Við ímynduðum okkur, að naz- istarnir héngju neðan í flugvélunum og veifuðp sprengjum eins og kylfum. Allt í einu gerðu flugvélarnar árás úr 10.000 feta hæð. Þær réðust fyrst á herskipin, sem vernduðu okkur. Fjórar sprengjur féllu nálægt skipinu okkar. Öl! skipin í einu hittu eina flugvélina með loft- varnaskeytum sínum, og hún hrapaði logandi í sjóinn. Hinar héldu áfram árásinni í heila klukkustund. Þær vörpuðu fremur litlum sprengjum, og þótt ekkert skipið yrði fyrir slíkri, þá skemmdust sum vegna þrýstingsins, er sprengjur sprungu skammt frá þeim. Fimm af þessum átta flugvélum skutum við niður. Nóttina eftir var þykkt í lofti og snjókoma. Við vorum enn við byssurnar og heyrðum að verndarskipin vörpuðu djúpsprengjum, og viss- um af því, að kafbátar voru nálægt. Seinna fengum við að vita, að einn slíkur hefði að lík- indum verið laskaður. Allt í einu sáum við hvíta rák fyrir aftan skipið. Tundurskeyti! En það fór fram hjá ckk- ur, og líka fram hjá næsta skipi, þaut eitthvað út í buskann. Tíu mínútum seinna varð ógur- leg sprenging, þegar tundurskeyti hitti skip í þriðju skiparöðinni, fyrir aftan okkur. Annað tundurskeyti kom þegar á eftir hinu fyrsta, óg- V I K I N G U R 23

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.