Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Qupperneq 27
A HÆTTUSVÆÐMU
Við lögðum af stað frá Reykjavík að kvöldi
þess 11. marz. Veður var leiðinlegt NA 8—9
stiga vindur. Eins og vanalega var stjórnborðs-
bátur látinn hanga í bátauglunum, en bakborðs-
Bakborðsbátuiinn liggur inni á bátadekki stjórnborðs-
megin; veðrið orðið gott.
bátur var látinn sitja í stólunum, en uglurnar
settar út til þess að báturinn flyti frekar upp,
en ekki var báturinn leystur. Einnig höfðum við
á fordekkinu björgunarfleka, sem var mjög vel
útbúinn. Flekinn stóð á fremsta lestaropinu fyr-
ir aftan mastur, og voru fiskiplankar undir
honum til hliðar. við lestaropið. Togvírarnir
voru hafðir utan um flekann til þess að halda
honum föstum.
Hinn 12. marz um kl. 4*4 f. h. vorum við
hjá Reykjanesi, og var stefna sett þaðan fyrir
utan Geirfuglasker. — Ruddaveður var, NA
8 stiga vindur, en um hádegi var vindurinn
genginn í SA með 9—10 stiga magni, og ó-
þverra sjólagi, en ferðinni var haldið áfram
með % ferð. Kl. 8 e. h. kom ólag á stýrishúsið
og braut einn glugga, en af því stýrishúsið er
brynvarið þá brotnuðu ekki fleiri. Eftir þetta
var haldið upp í vind og sjó með hægri ferð.
Kl. um 11 e. h. losnaði björgunarflekinn úr vír-
unum og hvolfdist yfir á stb.síðu, þar lenti
hann á fiskikassapolla, skekkti pollann í dekk-
inu, og dinglaði svo til og frá eftir því sem skip-
VÍKINGUR
ið valt og sjór kom á hann. Ekki var nokkurt
viðlit að gera tilraun til þess að binda flekann,
því fordekkið var alltaf borðstokkafullt af sjó.
í þessu umróti brotnaði dekkið undir pollanum,
og kom smávegis leki í afturlestina.
Hinn 13. marz var allan daginn haldið upp
í vind og sjó með hægri ferð, vindstaða var SA
og A með 10—11 stiga vindi og 12 stiga sjólagi.
Kl. 10 f. h. reið sjór yfir skipið, sem sleit bb.
bátinn lausan, báturinn hentist þvert, yfir báta-
dekkið og hafnaði á hvolfi innan til við stb.-
bátauglurnar, en brotnaði mjög lítið. Einnig
fylltist stb.-báturinn af sjó og bognuðu báðar
uglurnar, sérstaklega sú fremri. Flekinn fór
veg allrar veraldar, en verst þótti okkur að ná
ekki loftskeytastöðinni úr honum. Einhver
stakk upp á því, að ekkert hefði verið á móti
því að hafa hræðslupeninga-þingmanninn um
borð, til þess að setja á flekann um leið og hann
fór.
Hinn 14. marz rann upp með sömu ólátunum.
I nótt misstum við vegmælislínuna, en svo ó-
heppilega vildi til, að varalínurnar höfðu verið
Nærmynd af bátnum á hvolfi.
teknar í land í misgripum. Við stungum saman
2 kastlínur, sem voru til samans 32 faðmar, og
notuðum þær alla leið, og sýndi vegmælirinn
alveg rétt. Kl. 4 f. h. var gerð tilraun til þess
að halda SSA með 14 ferð, en við gáfumst fljótt
27