Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Blaðsíða 35
FRÁ KEFLAVfK
Vertíðin í Keflavík hefst um nýár og upp úr
áramótum. Þaðan róa frá 20—30 bátar frá 16
—40 smálestir, mikill meirihluti er þó frá 20
Hluti af flotanum í höfn í Keflavík.
—30 smál. Á hverri nóttu þegar gefur leggur
flotinn af stað. Veðráttan er mjög misjöfn. Þó
lagt sé af stað í góðu veðri er stundum komið
aftakaveður þegar á að fara að draga, og svo
líka hitt, að ekki er látið hamla þó aldan blási
og oft hráslagalegt að leggja af stað, en svo
Á leið út á fiskimiðin.
má illu venjast að gott þyki. En mörgum þeim,
er ekki þekkja til, myndi hrísa hugur við að
leggja upp í slíkar ferðir undir hinum strang-
ari tilfellum. Þegar róið er, leggja menn kapp
á að vera tilbúnir fyrir róðratíma og raða sér
þá út á línuna, sem kallað, er og bíða eftir
„blússinu“, sem gefið er með götuljósum bæj-
arins. Um leið og það er geíið leggur allur flot-
inn af stað með fullri ferð. Er oft þröng mikil
út með Skaganum. Ér næsta skrautleg sjón að
sjá allan flotann ljósum skrýddan. Það væri
helzt hægt að láta sér detta í hug skínandi borg,
eða eitthvað annað sem líkara er ævintýri en
veruleika.
Línan dregin inn.
Þegar kemur út fyrir Skaga dreifa bátarnir
sér á miðin, eftir því sem hverjum þykir fiski-
legast. Þeir, sem eru á gangtregari bátunum,
verða þó stundum að bíta í það súra epli, að
fara þangað sem kringumstæðurnar neyða þá
til, því allt er betra en lóðarþvargið. Þegar á
miðin er komið byrjar lagningin. Línan er
venjulega 24 balar fyrst á vertíðinni, en svo
er smábætt við, eftir því sem daginn lengir og
allt upp í 36. Að lagningu vinnur oftastnær öll
skipshöfnin, sem venjulega er fimm menn. Skip-
stjóri stýrir, en hinir vinna á dekki, einn kast-
ar færunum, tveir eru við rennuna og fjórði
V 1 K I N G U II