Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Page 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Page 44
Ugleíka þeirra manna, er ráðnir höfðu verið til að stjórna. Þá kom nú blessuð síldarverksmiðjustjórnin í almætti sínu fram á sjónarsviðið, hún hent- ist í bílum um landið og í flugvél yfir það, reiknaði og mældi, samdi og sagði, hér skal 10 þúsund mála verksmiðja, hér 15, hér 5 o. s. frv. Svo skrifar sá, sem fljótastur var, í blöðin og segir: Það þarf að byggja 15 þúsund mála síldarverksmiðju, en það var nú ekki lengi verið að „klukka“ hann úr leik. Það kom ann- ar, sem ætlaði að gera betur fyrir okkur sjó- mennina. Hann sagði: Það þarf ekki að byggj a 5 þúsund mála verksmiðju, ekki 10, ekki fimm- tán eins og sá óvísi sagði, heldur hundrað þús- und mála verksmiðju, og hann „klukkaði“ eng- inn úr leik. Já, mikið er allt á mér, sagði stelpan. Við sjómenn viljum hvorki 5, 10, 15 né 100 þúsund mála verksmiðju með því stjórnleysi og steinaldarfyrirkomulagi sem einkennt hefir Síldarverksmiðjur ríkisins síðustu árin. Af svo- leiðis höfum við fengið nóg. Við viljum heldur ekki síldarverksmiðjur, sem verða til aðeins á pappírnum, þegar mestu reiðileysisöldurnar skella yfir, og gerðar eru að- eins til að dreifa hugum okkar frá raunveruleik- anum. En við viljum annað. Við erum reiðubúnir að styðja þann og þá menn, með ráð og dáð, sem beita sér fyrir bygg- ingu nýtízku verksmiðja, sem stjórnað er af skilningi á aðstæðum okkar og samvinnu og velvild til okkar og annara manna, sem hags- muna hafa þar að gæta. Ég verð að segja það sem mína skoðun, að á íslandi verða aldrei byggðar það margar verksmiðjur, að þær fullnægi íslenzka skipaflot- anum í stærstu veiðihrotunum, enda væri slíkt vitleysa, þar sem um jafn stopulan veiðiskap er að ræða og síldveiðar. Enda þótt stór bót sé að fjölgun nýtízku verk- smiðja þá verður þó að vera takmark fyrir, hversu halda skal langt í þvi efni! Ég skil ekki, að nokkurntíma fáist úr þess- um vanda ráðið, ef ekki finnast einhver ráð til að geyma síldina óskemmda í stórum stíl um lengri tíma, svo þær verksmiðjur, sem starf- andi eru, gætu haft nóg að gera meiri hluta ársins, að afloknum stórum síldarsumrum. Þegar ég hefi heyrt menn segja: Nú verður ekki löndunarstopp í sumar, nú eru svo fá skip, þá hefir mér dottið í hug, hvort þessir menn hafi gert sér grein fyrir því, að aðeins þrjú skip, sem bera frá 12 hundruð til 2000 mál hvert, geta auðveldlega fullnægt 5000 mála verk- smiðju og það um lengri tíma, ef svo ber undir. 44 Raufarhafnar- verksmiðjan nýja Hr. Henry Hálfdánarson, lofskeytamaður á e.s. Súðinni, skrifar grein í Sjómannablaðið Víking 7.—8. tbl. 1942, þar sem hann telur upp margt af því slúðri, sem gengið hefir um Raufarhafnarverksmiðjuna frá því hún var byggð. Loftskeytamaðurinn telur, að sagað hafi ver- ið ofan af pressunum, og að gleymzt hafi að ætla pláss í verksmiðjunni fyrir þurrkarana sem eru stærstu vélarnar í verksmiðjunni. Það er álíka mikið vit í þessu, eins og ef Nýja síldarverksmiðjan á Raufarhöfn. Frá vinstri: Yzt sést löndunarkraninn, þá mjöl- geymsluhúsið og hliðin á 32.000 mál síldarþró. ég segði, að sagað hefði verið ofan af loft- skeytatækinu í Súðinni, til þess að hægt væri að koma því þar fyrir. Loftskeytatæki Henrys Hálfdánarsonar mundi, eftir að búið væri að saga ofan af því, vera til álíka mikils gagns og pressurnar á Raufarhöfn, eftir að búið væri að saga ofan af þeim. Sagan um, að gleymzt hafi að ætla þurrk- urum rúm, mun stafa af því, að byggð var skúrbygging við verksmiðjuhúsið endilangt fyr- ir annan þurrkarann, til þess að verksmiðju- Auðvitað ekki með því að tína síldina upp í hjólbörum og keyra hana fleiri kílómetra, held- ur með löndun í einum einföldum krana; stjórn- að af eimím manni. Akranesi, 10. október. V í K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.