Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Side 56

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Side 56
Bændurnir drukku og gestgjafinn með þeim, þeir urðu tungumjúkir í tali og smjöðruðu hver fyrir öðrum, gamli kölski varð ánægjulegri á svip og sagði: „Þegar drykkurinn hefir meiri áhrif á þá, verða þeir allir á okkar valdi“. Þegar þeir hafa tæmt eitt glas enn, verða þeir eins og refir, sem dilla rófunni hver framan í annan, enn eru þeir að leita færis til að svíkja hver annan, og bráðum verða þeir gráðugir og grimmir eins og úlfar. Bændurnir drukku meir og meir. Þeir urðu sífellt háværari og klúryrtari og í staðinn fyrir smjaðrið, voru þeir nú farnir að skamma hver annan, þeir hrintu og spörkuðu og gáfu hver öðrum pústra og húsráðandinn fékk sinn hluta svikalaust útilátinn. „Nú líkar mér að sjá“, sagði kölski, vertu hægur, núna eru þeir eins og úlfar, en bráðum verða þeir eins og svín. Enn um stund héldu bændurnir áfram að drekka, þeir voru orðnir alveg óðir, öskruðu og grenjuðu, án þess að þeir vissu hvað þeir voru að æpa, þegar þeir fóru, leiddust þeir all- ir út á gangstéttina og gestgjafinn með þeim, en þegar út kom, hnaut hann og féll endilang- ur niður í skarnið. Við þessa sjón varð gamli púkinn alveg frá sér numinn af fögnuði. „Þú hefur leyst starf þitt af hendi með mikilli prýði“. En hvernig hefur þú farið að því að breyta bóndanum svona mikið, spurði hann. •— Fyrst varð hann lævís eins og refur, síðan grimmur eins og úlfur og seinast viðbjóðslegur eins og svín. Það var vandalítið, anzaði litli púkinn, ég hefi ekkert gert annað en að sjá um, að hann eignaðist mikinn auð. Hið villta dýrseðli hafa allir í sér, en það brýzt ekki fram á meðan þeir þurfa að hafa daglegar áhyggjur fyrir lífsvið- urværi sínu, og þá öfunda þeir ekki heldur ná- ungann, þó að honum vegni vel. En naumast hafa þeir fengið gnægtir, fyrr en óhófssemin og ágirndin hafa gjörsamlega náð tangarhaldi á þeim. Og þegar þeir hafa slökkt guðdómsneist- ann í víninu, brýst dýrseðlið fi'am. Þannig mun það verða á meðan mennirnir halda áfram að drekka vín í óhófi, eru þeir likastir villtum dýr- um. Gamli púkinn hrósaði þeim litla fyrir hygg- indin, og gaf honum ekki einungis upn allar sak- ir, heldur tilnefndi hann sem púkaforingja, er gengi sér næst að virðingu og tign. Lausl. þýtt. Skólabræður — Sæll og blessaður Mummi minn, góði gamli skólabróðir, hvernig hefir þú það? — Gott, þakka þér fyrir! — En hvað það er nú langt síðan að við gömlu bekkjarbræðurnir höfum liitzt ....! — Jú, svo er nú það — pú ættir bara að vita, livei'su oít ég liugsa með sjálfum mér: Hvernig skyldi nú Mummi liafa það ..! — Svo já ....? — það var þó svei mér skennntilegur tími, sem við sátum saman á skólabekknum .... — Við sátum nú ekki saman á bekk! — Nei, en við erum bekkjarbræður, ekki satt! — Jú, það erum við. — pað er svo samrýmandi .... og tengir mánn ævi- langt, að hafa gengið saman i skóla! Nú ert þú orð- inn virtur og vel stæður forstjóri, nú, en mér hefir gengið ýmislegt á móti, og lítið sótzt á brattann, nú og þrátt fyrir það sitjum við nú hér og spjöllum sam- an cins og góðir gamlir vinir .... — Eg er dálítið vant við látinn, svo ef þú vildir .... — Góði Mummi, lofaðu mér að grúska svolítið í minningunum! Manstu til dæmis — ég man það eins og það liefði skeð í gær —■ þegar þú, í reikningstíma hjá porbirni .... — Ekki kenndi þorbjörn okkur reikning! — Var það ekki? Jæja ég blanda þá eitthvað mál- um. En þú stóðst upp, ósmeikur, og játaðir, að það hefði verið þú, sem teiknaðir skopmyndina af kenn- aranum á töfluna — pað var ekki ég! — Nei, það varst víst ckki þú, Mummi, sem gerðir það, en einmitt þess vegna var það svo stórbbrotið af þér að taka á þig sökina, og koma þannig öllum bekknum hjá því að sitja eftir í klukkutíma ....! —■ pað var ekki ég, sem stóð upp og játtvði, það var Pétur Jónsson, og ef nvig minnir rétt, var það líka hann scm átti teikninguna! — Nú, varst það ekki þú, en það gæti nú samt hafa verið þú, því að þú varst þá þegar farinn að mótast af liugrekki og hreinskilni ....! — Heyrðu nú, eigum við ekki að korna okkur að einfnu? — Efninu .... ? —- Já, hvað er það mikið? — Góði Mummi, þú átt það stundum til, að ganga svo hiklaust til verks .... en það fer þér vel, það var jafnvel farið að bera á þessu hjá þér i skóla, manstu til dæmis í leikfimi, þegar .... — Hvað mikið? — Hundrað krónur! — Ekki til að nefna ....! — Góði Mummi rninn, ef þú bara í þetta eina skipti gætir lánað mér hundrað krónur, til að komast fram úr augnabliks vandræðum ....! — Siðast átti þessu að vera lokið! — pað er ómögulegt, Mummi. Svona ert þú ekki! V í K I N G U R 56:

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.