Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Page 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Page 24
Þú hefur ehki sar/t viff mig eitt skemmtilegt orS i tvo daga. Prófessor nokkur vaknaði kl. 4 um nótt við að síminn hringdi. Eg get ekki sofið fyrir gelti og ýlfri í hund- inum ySar sagði æst rödd nágranna- konu. Þakka yÖur fyrir, umlaði prófess- orinn hálfsofandi. Kl. 4 nóttina eftir hringdi síminn hjá nágrannakonunni: Eg ætla bara að láta yöur vita, kæra frú, að ég á engan hund, sagði pró- fessorinn. * í nótt dreymdi mig konuna yðar. Og hvað sagði hún ‘? Ekkert. Þá hefur það ekki verið konan mín. * Ef nú báturinn sekkur, sagöi kon- an hrædd. Hverjum ætlarðu þá að bjarga fyrst, barninu eða mér? Mér, sagði maðurinn samstundis. * Þú heldur víst að ég geri eins og allar hinar, að ég flytji heim til mömmu, sagði eiginkonan eftir hörku- rifrildi við mann sinn. En þar skjátl- ast þér, góði. Eg ætla að biðja hana mömmu að koma hingað. * Áður sagðir þú alltaf að ég væri allur heimurinn fyrir þig. Já, — en síðan hefur mér farið fram í landafræði. * Það var stór heræfing. Liðsforing- inn henti sér á jörðina og hrópaði: „Eg er fallinn, þér takið við stjóm- inni, Johnsen lðiþjálfi". — Eg hef tekið stjómina, svaraði Johnsen. Komið strax með skóflur. 224 — Hugsaðu þér, hún Soffa erfði 200 þús. lnr. eftir frænda sinn, sem hefir ekki einu sinni séð liana, hvað þá heldur meir. — Nú, það skýrir auðvitað málið. Jrttaktih Það er ekki hægt að gera böm góð með því að gera þau hamingjusöm, en það er hægt að gera þau ham- ingjusöm mrð því að gera þau góð. Bemard Shaw sagði eitt sinn, að það sein kæmi sér verst fyrir hinn ó- sannsögla væri ekki það, að enginn tryði honum, heldur hitt, að hann þyrði engum að trúa sjálfur. — Yinur minn, sagði gömul kona við lítimi snáða. Varst það þú, sem stalst epluniun míniun úr garðinum mínum í gær. — Nei, ég þótti of lítill, en þeir lofuðu mér að ég skyldi fá að vera með á næsta ári. * — Eg ætla að fá gert við skemmda tönn, sagði drengurinn. Tannlæknir- inn er því miður ekki við í svipinn, sagði stúlkan. Það var leiðinlegt. G-etið þér ekki sagt mér hvenær hann verður ekki við næst. Maður nokkur sem var hátt uppi, slangsaði fram hjá áfengisverzlun og datt endilangur á gangstéttina, Eldri kona, sem gekk framhjá, opnaði dym- ar og kallaði inn: Auglýsingaspjaldið ykkar hefir oltið um koll! * Maður nokkur stóð og glápti á veiðimann nokkum, sem dró hvem fiskinn af öðmm en henti þeim jafn- óðum í vatnið aftur. Loksins beit smátittur á hjá honum og dró maður- inn hann varlega í land og lét í veiði- pokann. — Hvemig stendur á því að þú hendir liinum stóra en hirðir þá litlu, spurði maðurinn undrandi. Steikarapannan min er svo lítil. ' . * Á bænum Hóli hafði það borið við oftar en einu sinni, að kviknað hafði í bæjarliúsinu og þótti ýmsum nóg um, er hefir orðið tilefni að eftirfar- andi vísu eftir hinn kunna liagyrðing Máskóga Stefán: Þótt Hekla verði glóða geld og gaddur á Kötlubóli. Og skorti Yíti allan eld, er alltaf neisti á Hóli. * Eitt sinn tók Bemard Shaw þátt í samkvæmi, sem haldið var til fjáröfl- unar í góðgerðaskjuii. Að borðhaldinu loknu fór hann og bauð einni aðalfor- göngukonunni upp í dans. Hún var stórhrifin af því að dansa við hinn fræga rithöfund. — Að hugsa sér að þér skylduð bjóða mér upp! — Kæra frú, sagði Shaw, er hanu tók hana danstökunum. Þetta er allt saman góðgerðastarfsemi, er það ekkií YÍKINHHK

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.