Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Qupperneq 24
Þú hefur ehki sar/t viff mig eitt skemmtilegt orS i tvo daga.
Prófessor nokkur vaknaði kl. 4 um
nótt við að síminn hringdi. Eg get
ekki sofið fyrir gelti og ýlfri í hund-
inum ySar sagði æst rödd nágranna-
konu.
Þakka yÖur fyrir, umlaði prófess-
orinn hálfsofandi. Kl. 4 nóttina eftir
hringdi síminn hjá nágrannakonunni:
Eg ætla bara að láta yöur vita, kæra
frú, að ég á engan hund, sagði pró-
fessorinn.
*
í nótt dreymdi mig konuna yðar.
Og hvað sagði hún ‘?
Ekkert.
Þá hefur það ekki verið konan mín.
*
Ef nú báturinn sekkur, sagöi kon-
an hrædd. Hverjum ætlarðu þá að
bjarga fyrst, barninu eða mér?
Mér, sagði maðurinn samstundis.
*
Þú heldur víst að ég geri eins og
allar hinar, að ég flytji heim til
mömmu, sagði eiginkonan eftir hörku-
rifrildi við mann sinn. En þar skjátl-
ast þér, góði. Eg ætla að biðja hana
mömmu að koma hingað.
*
Áður sagðir þú alltaf að ég væri
allur heimurinn fyrir þig.
Já, — en síðan hefur mér farið
fram í landafræði.
*
Það var stór heræfing. Liðsforing-
inn henti sér á jörðina og hrópaði:
„Eg er fallinn, þér takið við stjóm-
inni, Johnsen lðiþjálfi".
— Eg hef tekið stjómina, svaraði
Johnsen. Komið strax með skóflur.
224
— Hugsaðu þér, hún Soffa erfði
200 þús. lnr. eftir frænda sinn, sem
hefir ekki einu sinni séð liana, hvað
þá heldur meir.
— Nú, það skýrir auðvitað málið.
Jrttaktih
Það er ekki hægt að gera böm góð
með því að gera þau hamingjusöm,
en það er hægt að gera þau ham-
ingjusöm mrð því að gera þau góð.
Bemard Shaw sagði eitt sinn, að
það sein kæmi sér verst fyrir hinn ó-
sannsögla væri ekki það, að enginn
tryði honum, heldur hitt, að hann
þyrði engum að trúa sjálfur.
— Yinur minn, sagði gömul kona
við lítimi snáða. Varst það þú, sem
stalst epluniun míniun úr garðinum
mínum í gær.
— Nei, ég þótti of lítill, en þeir
lofuðu mér að ég skyldi fá að vera
með á næsta ári.
*
— Eg ætla að fá gert við skemmda
tönn, sagði drengurinn. Tannlæknir-
inn er því miður ekki við í svipinn,
sagði stúlkan.
Það var leiðinlegt. G-etið þér ekki
sagt mér hvenær hann verður ekki
við næst.
Maður nokkur sem var hátt uppi,
slangsaði fram hjá áfengisverzlun og
datt endilangur á gangstéttina, Eldri
kona, sem gekk framhjá, opnaði dym-
ar og kallaði inn: Auglýsingaspjaldið
ykkar hefir oltið um koll!
*
Maður nokkur stóð og glápti á
veiðimann nokkum, sem dró hvem
fiskinn af öðmm en henti þeim jafn-
óðum í vatnið aftur. Loksins beit
smátittur á hjá honum og dró maður-
inn hann varlega í land og lét í veiði-
pokann. — Hvemig stendur á því að
þú hendir liinum stóra en hirðir þá
litlu, spurði maðurinn undrandi.
Steikarapannan min er svo lítil.
' . *
Á bænum Hóli hafði það borið við
oftar en einu sinni, að kviknað hafði
í bæjarliúsinu og þótti ýmsum nóg
um, er hefir orðið tilefni að eftirfar-
andi vísu eftir hinn kunna liagyrðing
Máskóga Stefán:
Þótt Hekla verði glóða geld
og gaddur á Kötlubóli.
Og skorti Yíti allan eld,
er alltaf neisti á Hóli.
*
Eitt sinn tók Bemard Shaw þátt í
samkvæmi, sem haldið var til fjáröfl-
unar í góðgerðaskjuii. Að borðhaldinu
loknu fór hann og bauð einni aðalfor-
göngukonunni upp í dans. Hún var
stórhrifin af því að dansa við hinn
fræga rithöfund.
— Að hugsa sér að þér skylduð
bjóða mér upp!
— Kæra frú, sagði Shaw, er hanu
tók hana danstökunum. Þetta er allt
saman góðgerðastarfsemi, er það
ekkií
YÍKINHHK