Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1979, Síða 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1979, Síða 37
krónur væru í hans höndum, að það varð að halda honum. Hann ætlaði bæði að baka þá og merja, já, það var enginn endir á öllu því, sem hann ætlaði að gera þegar hann reyndi að slíta sig lausan til að ná sér niður á nefndinni. Þótt honum tækist ekki að leggja hendur á mennina þá tókst hon- um samt að segja þeim sína meiningu, sem var sú, að hann óskaði þess af öllu hjarta, að sá dagur kæmi skjótt að þetta djöfuls nafn, sem þeir hefðu sett á bátinn, stæði fast í kokinu á þeim. Rúmum níu mánuðum síðar kom Hið siglandi veldið inn á milli Bumsatanga og Völisbrekku. Það freyddi fyrir stafni og small í flöggum, svo flautaði hann og lá kyrr og vaggaði á öldunni eins og óþolinmóður kappsiglari. Jens Fjallatind var kominn í Færeysk- an búning. — Það veit Guð, sagði hann, að konungsskipið var eins og dallur borið saman við þetta. Það var haldin mikil móttöku- hátíð. Balteus gamli skreið upp úr körinni og fleygði frá sér báðum prikunum og kom brosandi niður á bryggju. Þeir skelltu tveimur glösum af sjenever í hann og hann lá eins og skata. Hann var sá fyrsti sem féll í valinn. Seinna kepptust þeir við að fara að dæmi hans, lágu eins og flugur sáldraðir um alla byggðina og hrópuðu húrra löngu eftir að þeir misstu rænuna. Stórtemplarinn kom líka niður eftir, hann hafði ekki sofið um nóttina fyrir tannpínu, og fékk nokkur glös til að draga úr tann- verknum. Honum létti þegar í stað og þakkaði kærlega fyrir sig. Út- gerðarstjórnin hafði hvorki deilt né reiknað með þriðjungnum þegar þeir pöntuðu sprúttið. En þó flöskurnar væru margar voru ræðurnar fleiri. Það voru ekki bara þeir fullorðnu, sem stóðu á fætur til að fagna þessu nýja framtaki, sem yrði byggðinni til VÍKINGUR gagns og blessunar, smástrákarnir létu sitt ekki eftir liggja, þeir máttu ekki sjá svo stein að þeir príluðu ekki upp á hann til að segja nokkur vel valin orð um hafsins gylltu snekkju, peningakassann, milljónerann og gulljötuna. — Hvað eigum við að gera við alla peningana hans pabba? köll- uðu þeir. — Við skulum kaupa okkur kúrekabuxur, kappakstursbíl, þrjú tonn af Andrés Önd og hundrað þúsund tonn af rjóma- karamellum. Þannig töluðu strák- arnir, þeir voru saklausir og fá- kænir og áttu bara leikfangabáta með hvítum seglum. Auðvitað hló fullorðna fólkið að þeim og krossaði sig upp á að það mundi verja byggðina fyrir stóryrðum þeirra. Það var svo miklu skyn- samara en strákarnir, skál fyrir því, húrra! Myrkrið breiddi blæju sína yfir Krabburð. Það kviknaði á einum olíulampanum á fætur öðrum, rafmagnsljós sáust ekki og það var langt í næstu kosningar. En engu að síður Ijómaði byggðin þetta kvöld. Hið siglandi veldið var baðað í draumabirtu, ljósavélin malaði alla nóttina og það gerðu húsin einnig, út um opna glugga bárust brot af stemmum, dynur af dansi og húrrahróp þar til dagur rann. Um hádegisbilið næsta dag var farið í skemmtisiglingu. Menn og unglingar komu kveðandi um borð, dálítið slæmir til gangs, ein- hver haltraði, annar hafði fengið glóðarauga, fleiri höfðu fengið skrámur hér og þar, en nú var það allt gleymt, þeir kysstu og föðm- uðu hver annan. Tveir strákar höfðu fengið sér sæti upp á rad- amum, þeir sátu þarna, snerust í hringi og skellihlógu. Radarinn brotnaði undan þeim, en Drottinn minn, það var nú hægt að fá gert við hann seinna. Einar hafði fengið sér stóran vindil, hann vissi þetta fullvel, en samt sem áður tók hann strákana í gegn þegar þeir komu niður á þilfar og lokaði þá inni í myrkum geymsluskáp. Hvert stefndi Hið siglandi veldið? Stefnan var klár. Til Grasagarðs. Það var ekki til að halda sig til og sýna sig fólki. Vit- leysa! Grasagarður var falleg byggð, um það varð ekki deilt, sumum þótti þar jafnvel fallegra en í Krabburð, en þar er ekki síður fallegt. Hún hafði falleg fjöll, fallegan sand, og framar öllu öðru, laglegt kvenfólk. Tarnovíus stóð frammi á hvalbak og sagði, að svo hefði það verið lengi sem hann mundi, og það væri vel þess virði að sjá það og hafa af því gaman. Hið siglandi veldið kom öslandi og stefndi á fullri ferð upp í fjöruna svo það sullaði á skjól- borðum, en þar var engan að sjá. Jakob bóndi klifraði upp í vantinn og æpti Jibbíjehí og skrækti eins og indíánahöfðinginn Chinga- kokk. — Þeir þora ekki að láta sjá sig, sagði Hanna Malena. — Þær mega ekki vera að því, sagði Albana, þær eru að baka franskbrauð. Einar gerði lúður úr lófunum og hrópaði til lands: — Svikarar og smámenni, verði ykkur allt að meini! Þetta skuliði fá fyrir Pétursmessuna! Hið siglandi veldið renndi ekki upp í sandinn, það fór ekki á hliðina, heldur var því stýrt af mikilli snilld fyrir utan sker og boða og kom aftur til Krabburðar eftir góða ferð og lagði að bryggju. Hátíðinni var lokið og nú var hversdagurinn framundan, grár og litlaus. Það voru engin húrra- hróp fyrir honum. Balteus gamli skreið aftur í körina og hvíldi þar sín lúnu bein. — Báturinn skal á hámeri, sagði Hanna Malena, ef hann fer ekki á hámeri þá tek ég aftur hlutafé mitt, þið getið gert það sem ykkur sýnist. 37

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.