Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1979, Side 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1979, Side 39
hamar, sem þeir hafa suður í Höfn hefði næstum molað Hið syngj- andi veldið. — Pabbi segir að hamarinn sé fallinn, hrópaði einn með stíflað nef og hrúður á hnjám. Pabbi segir að báturinn komist ekki út aftur. — Það ætti ekki að leyfa Hafnarmönnum að eiga svona hamar, æpti annar. — Hafnarmenn hafa aldrei getað smíðað neitt. — Þetta hlýtur að vera svaka þungur hamar, sagði sá þriðji, hann hlýtur að vera fleiri tonn. — Það hlýtur að vera, kallaði sá fjórði, þeir segja að öll brúin sé brotin og hvalbakurinn líka. — Hörmulegt að það skuli vera hægt að eyðileggja svona mikið fyrir einni byggð, sagði sá fimmti, og ég sem var farinn að hlakka til að fá öll Andrésblöðin. Þetta voru ill tíðindi, samt ekki svo slæm að ekki væri hægt að lifa þau af. Verri voru fréttirnar, sem bárust tveimur vikum síðar, að Grasagarðsmenn hefðu keypt Hið siglandi veldið. — Nú er aðeins eitt eftir, sagði Tarnovíus, að leggjast út af og geispa golunni. En eiturbikarinn var enn ekki tæmdur. Dag nokkurn spurði Jakob bóndi Hönnu Malenu hvort hún vissi hvaða nafn Hið syngjandi veldi hefði fengið. Hanna Malena hristi höfuðið. — Fríða! sagði Jakob bóndi brosandi, eins og honum þætti þetta fyndið. — Á ég að stafa það fyrir þig, F-R-í-Ð-A, Fríða. Hanna Malena varð orðlaus, það stóð allt fast í hálsinum á henni, en Jakob bóndi hélt áfram brosandi og stafaði þetta nýja nafn fyrir fólkið, og sagan endur- tók sig, menn komu ekki upp orði. Grasagarður keypti bátinn. Engar ræður voru fluttar þegar hann kom þangað, enginn hróp- VÍKINGUR aði húrra, þeir bara átu sín franskbrauð með góðri lyst og allt gekk þeim í haginn. í Krabburð var ekki hræðu að sjá, það var eins og allir hefðu tekið Tarnovíus á orðinu. Það var bara rekamaðurinn Sámal Mathí- as, sem gekk í súldinni fram með bökkunum í leit að stóra rekan- um, sem hann hafði löngum Nýlokið er við smíði á nýstár- legu fiskiskipi í Noregi, en það hefur nýverið farið í reynsluferð. Þetta skip er 70 feta langt og heitir STOTTVAERINGEN og það er blanda af línuveiðara og nótaveiðiskipi. Að vísu má segja sem svo, að það sé ekki nýtt að nótaveiði og línuveiðar séu stundaðar á sama skipinu, en þarna er að finna ýmsar merkilegar nýjungar og vænta menn rnikils af þessu skipi, sem dreymt um að fá, en aldrei fundið. Af og til fór maður með hjólbörur í gegnum bæinn og yfir brúna, þar sem brotni plankinn lá og hafði legið allt frá þeim tíma er Tarn- ovíus vappaði um tún og engi, lít- ill drengur með leikfangabát og brunnar tennur. (þýð. Jón Bjarman) ætlað er til veiða langt frá landi. Það voru opinberir aðilar sem hönnuðu þetta nýja norska fiski- skip í samvinnu við þekkta skipa- smíðastöð í Noregi. Meðal bún- aðar eru sjókældar fisklestar. STOTTVAERINGEN er búið 520 hestafla Caterpillarvél. íbúðir eru fyrir átta manna áhöfn, og það er búið breskum og japönskum fiskileitar- og siglinga- tækjum. 39 Ný fiskiskipagerð frá Noregi

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.