Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1979, Side 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1979, Side 9
horfinn. Menn búa sér til skurðgoð sem eru gráðug og svikul. Og þegar þau bregðast stendur maðurinn eftir einn, aleinn. Rödd kirkjunnar er ekki þögnuð. Kirkjan kallar inn í þennan heim, heim vonleysis og óhamingju og biður menn að snúa við. Hún bendir á að ef líf þitt er grundvallað á Kristi, ertu aldrei einn. En hver heyrir rödd kirkj- unnar í hávaðasömum heimi? Hver má vera að því að staldra við og hlýða á boðskap Krists, sem oft er eins og fleinn i það samfélag sem metur allt til fjár? Er það ekki ástæðan fyrir því að víða er brákaður reyr og tár á hvarmi? Frelsi er orð sem lætur hátt í eyrum dag hvern. Frelsi er lausnarorðið á tungu margra sem telja sig til þess kallaða að leiðbeina og kenna öðrum. En frelsið getur verið tví- eggjað. Frelsi er eitt grundvallaratriði þess að maðurinn nái mannlegri reisn. En ef við misnotum það og gerum bæði það sem rangt er og óhollt, glötum við mennsku okkar. Þá erum við ekki frjáls, heldur þrælar lítilmót- legra hvata. Víðsýni, framfarahugur og frelsisást er ekki fólgið í takmarkalausu umburðalyndi gagnvart hverju sem er, ólifnaði, ranglæti eða hverri kenningargolu sem um samfé- lagið leikur. Frelsi kristins manns er fólgið í því að leiðbeina, örva og styrkja af góðum og ein- lægum huga. Hlúa að brákuðum reyr og þerra tár af hvarmi. Það er frelsi kærleikans sem vill reyna að bjarga en horfir ekki aðgerðarlaust á þegar barn Guðs lendir í ófæru. Kirkja Krists vill ekki vera hljóðlát um framtíðarheill þjóðar. Hún vill tala skýrt og opinskátt svo að eftir verði tekið. En umfram allt vill hún vera sönn og beygja ekki af vegi sannleikans sem opinberaður er í heilagri ritningu. „Líðandi stund er gullið á fingri tímans“. Láttu ekki gullið dýra sáldrast niður milli fingra þinna og týnast í sora og forarpollum mannlegrar niðurlægingar. Reisn mannsins er mikil þegar best lætur. Þá er hann kóróna sköpunarverksins. En hann er lítilsigldur í veikleika sínum þegar hann lætur undan hverri freistingu, eltir sérhvert tískutildur og hégóma sem birtist honum á öld tilgangsleysis og undansláttar. Menn leita oft langt út í fáránleikann til i að reyna að finna sál sinni frið og lífi sínu tilgang. En það þarf ekki að leita í austur eða vestur að forskrift að lífi þjóðar eða ein- staklings. Svör og leiðsögn er að finna í trú og trausti á Drottin Guð. Hann bregst ekki þegar kaldur raunveruleikinn hefur tínt af mann- inum gerviblómin, skrautfjaðrirnar. Þegar skurðgoðin eru fallin af stalli og maðurinn er eftir skilinn einn. Þegar glamur og hávaði heimsins þagnar og maðurinn stendur einn í þögninni þá er Kristur þar og býður honum nýtt líf. Fagnaðarboðskapurinn sem fiskimenn fátækir fengu í hendur forðum á vissulega erindi við þig. „V erið óhræddir," sagði engillinn við fjár- hirðana á Betlehemsvöllum. Verið óhrædd- ir, segir kirkjan í dag. Kristur sem á jólum fæddist, lifir. Hann vill gefa þér nýtt líf. Guð gefi sjómönnum öllum og fjölskyld- um þeirra gleðileg og heilög jól. Drottinn Guð gef sjómönnum öllum far- arheill og góða heimkomu. Kjartan Örn Sigurbjörnsson sóknarprestur í Vestmannaeyjum. VÍKINGUR 9

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.