Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1979, Síða 65
Fiskverð miðist við
þyngd en ekki lengd
Frá og með 1. nóvember 1979
verður verð á þorski og ýsu ákveð-
ið eftir þyngd í stað lengdar, segir í
tilkynningu nr. 32/1979 frá Verð-
lagsráði sjávarútvegsins. Breyt-
ingin er við það miðuð að meðal-
verð þessara tegunda haldist
óbreytt, þegar Iitið er á ársaflann.
I stað þess að taka sýnishorn úr
afla og flokka eftir lengd skal nú
fundin með sýnatöku meðal-
þyngd fisks í farmi fyrir hvora
tegund um sig; og ræðst verðmæti
farmsins af þessari meðalþyngd
og gæðaflokkun. Framleiðslueft-
irlit sjávarafurða mun annast
þessa sýnatöku og útreikning á
meðalþyngd.
Hæsta verð pr. kg af þorski
miðað við slægðan fisk næst, þeg-
ar meðalþyngd þorsks í farmi er 4
kg eða meiri, þ.e. 25 eða færri
fiskar eru í hverjum 100 kg. Hæsta
verð pr. kg af ýsu næst, þegar
meðalþyngd ýsu í farmi er 2 kg
eða meiri miðað við slægðan fisk,
þ.e. 50 eða færri fiskar eru í
hverjum 100 kg. Verðið fer síðan
lækkandi með lækkandi meðal-
þyngd, þannig að frá hæsta verði
dregst ákveðin auratala fyrir
hvern fisk, sem þarf umfram 25 í
100 kg af þorski, en umfram 50 í
100 kg af ýsu.
Hér á eftir verða sýnd þrjú
dæmi um veðútreikning sam-
kvæmt hinu nýja kerfi.
Þorskur (slægður með haus):
Meðalþyngd í farmi 1.75 kg
Verð pr. kg er kr.:
190.00 - 0.75« 100:1.75)— 25) = 165.89
Meðalþyngd í farmi 2.40 kg
Verð pr. kg er kr.:
190.00 — 0.75(( 100:2.4) — 25) = 177.50
VÍKINGUR
Meðalþyngd í farmi 3.40 kg
Verð pr. kg er kr.:
190.00 - 0.75(( 100:3.40) —25) = 186.69
Ýsa (slægð með haus):
Meðalþyngd í farmi 1.20 kg
Verð pr. kg er kr.:
180.00 - 1.00(000:1.20 - 50) = 146.67
Meðalþyngd í farmi 1.50 kg
Verð pr. kg er kr.:
180.00 - 1.00« 100:1.50)-50) = 163.33
Meðalþyngd i farmi 1.90 kg
Verð pr. kg er kr.:
180.00 - 1.00« 100:1.90 — 50) = 177.37
Þá fylgir einnig myndrit sem
sýnir samanburð á verðlagningu
þorsks eftir hinu nýja þyngdar-
kerfi og hinu eldra lengdar-
flokkakerfi.
Samanhurður á verðlagningu á þorski eftir
lengd og eftir þyngd
(þrepalínan sýnir gömlu verðlagninguna
en hogalínan þá nýju)
65