Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1979, Blaðsíða 23
Reykjavík lifa nú á því að fram-
leiða fisk í neytendapakkningum.
Þessi vara er mun dýrari, allt að
því helmingi dýrari en fiskur úr
fiskbúðum.
— Gætu leiðbeiningar um
meðferð á fiski og matreiðslu
aukið söluna?
— Fisksalafélagið er fámennt
og bláfátækt. Kostnað við leið-
beiningaþjónustu og auglýsingar
yrðum við að taka af kaupinu
okkar. En það er spurning hvað
stjórnvöld vilja gera. Neysla á fiski
hefur minnkað, en aukist á kjöti.
Kjötið er niðurgreitt, en það er
fiskurinn ekki.
— Viljið þið láta niðurgreiða
fisk?
Sigurður Björnsson við kæliborð með lostætum síldarréttum.
AHt að 30 tegundum
á boðstólum
— Nei. Það hefur verið reynt,
og mér skilst að það hafi komið
illa út.
— Hvert sækja fisksalar í
Reykjavík fiskinn?
— Á haustin og veturna sækja
þeir hann mikið suður á Reykja-
nesskaga, í Keflavík og Sandgerði
og til Grindavíkur. Það er sáralít-
inn fisk að hafa hér í Reykjavík,
ekki nema togarafisk, og hann er
bæði dýr og lakari að gæðum en
línufiskur. Núna í dag er fiskúr-
valið heldur fábreytt. Þú sást 15
tegundir í búðinni hjá mér, en
þegar nóg er að hafa geta þær
komist upp í 30.
— Hvað er vinnudagurinn
langur hjá ykkur fisksölum?
— Hann nær því að vera allur
sólarhringurinn, þegar mest er að
gera í hrognunum á veturna. Að
meðaltali er hann frá hálfsex á
morgnana og fram yfir kvöldmat.
En maður slakar á einn til tvo tíma
um miðjan daginn. Þetta er al-
gengt.
Erum við að læra
að éta sfld?
Á Reykjavíkursvæðinu eru
starfandi þrjú fyrirtæki sem fram-
leiða einkum niðurlagða síld á
innanlandsmarkað. Þessum fyrir-
tækjum er sameiginlegt að þau eru
öll ung, og öll virðast þau eiga
viðgangi að fagna, því salan fer
vaxandi. Þessi fyrirtæki eru fs-
lensk matvæli í Hafnarfirði, fs-
lenskir sjávarréttir í Kópavogi og
Síldarréttir í Reykjavík.
Slldarflök lögð niður f krukkur í íslenskum matvælum.
VÍKINGUR
23