Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1979, Qupperneq 63
í för með sér verulegan sparnað.
Ekki er lengur nauðsynlegt að
taka skip í slipp til hreinsunar,
sem er bæði dýrt og tímafrekt.
Áætlun skips raskast ekki, því að
hreinsun getur farið fram jafn-
framt losun eða lestun. Eldsneyt-
issparnaður er umtalsverður. Til
dæmis má taka Háafoss. Haukur
Guðmundsson hreisnaði botn
hans í september síðastliðnum.
Hann var þá orðinn nokkuð gró-
inn, þó ekki væru liðnir nema 7
mánuðirfrá því hann hafði verið í
slipp. En hafa verður í huga að á
þessu tímabili lá skipið alllengi í
höfn (í verkfallinu) og við slíkar
aðstæður verður gróðurmyndun
meiri en ella. Háifoss er 1600
brúttó rúmlestir. Það tók kafarann
8'/2 klst, að hreinsa botn skipsins;
kostnaður: rúmlega 270 þúsund
krónur. Samkvæmt upplýsingum
Viggós Maack skipaverkfræðings
hjá Eimskipafélaginu, eyddi Hái-
foss 25,8 kg af gasolíu á hverja
sjómílu fyrir hreinsunina, en eftir
hana 20,8 kg miðað við sama
hraða. í einum túr frá Reykjavík
til Kaupmannahafnar og til baka
(2400 mílur) sparast því 12 tonn af
olíu. Tonnið af gasolíu kostar í
Khöfn 342 dollara eða nær 132
þúsundum króna, þannig að olíu-
sparnaður í einni slíkri ferð er ríf-
lega hálf önnur milljón króna.
Botnhreinsun kemur
í veg fyrir tæringu
Hér verður sparnaðardæmið
ekki rakið lengra. En rétt er þó að
drepa á enn eitt höfuðatriði.
Skipsbotn stálskipa er málaður
með tvenns konar málningu, fyrst
ryðvarnarmálningu og síðan
málningu til varnar gróðri og
dýralífi. Það er breytilegt eftir að-
stæðum hversu ör þessi lífmyndun
á botni skips er og hve lengi yfir-
málningin dugir til varnar, en ef
hreinsun dregst úr hömlu getur
lífmyndunin á botninum unnið á
henni og síðan valdið tæringur í
VÍKINGUR
Eldsneytissparnaður. — Af línuritunum hér að ofan niá fá samanburð á hraða og olíu-
eyðslu tvcggja skipa á tvcggja ára tímahili eftir að þau koma úr klössun úr slipp.
(•anf>hraði beggja er í upphafi þessa tímabils 15 mílur. Efra línuritið gildir um skip sem
aldrei cr botnhreinsað á þessum tíma, cn hið neðra um skip sem er hreinsað af kafara eftir
9,15 og 20 mánuði. Lóðréttu mælikvarðarnir sýna hlutfallslcga aukningu á olíueyðslu (til
vinstri) og hraða i mílum á klst. Lárétti kvarðinn sýnir tímalengd í mánuðum.
botnplötunum. Línuritið sem
þessu greinarkorni fylgir getur
gefið hugmynd um hversu nauð-
synleg regluleg botnhreinsun er,
þó að tímabilin sem þar eru skráð
eigi ekki við í einstökum tilvikum.
63