Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1979, Page 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1979, Page 19
greind þeirra sem selja fisk til neytenda. Samkvæmt henni er víst óhætt að gera ráð fyrir því að ýsa sé eftirsóttasti matfiskurinn og þá helst ýsuflök. Lítið meira vitum við með vissu, nema fiskur er fæða hversdagsins. Það er út af fyrir sig umhugs- unarefni hve fiskveiði þjóðinni íslendingum er í rauninni lítið gefið um fiskinn. Fáir gera sér grein fyrir því að sjávarafli býður upp á fjölbreytilegt hráefni, lystilegan hátíðamat. Ef til vill er nú þetta ljós að renna upp fyrir íslendingum smám saman. Við- tölin við formann Fisksalafél- agsins og framleiðendur síldar- rétta hér á eftir gætu bent til þess. Fólk kaupir mest ýsu en líka margt annað Einn bjartan morgun í október. Stundarkorn staldra ég við í fisk- búðinni í Víðimel 35 til að skoða fiskinn og fólkið sem kemur til að kaupa hann. Nokkrar mínútur er ég þarna einn inni með af- greiðslumanninum, ísaki Þor- bjarnarsyni. Hér fæst sitthvað af gómsætu fiskmeti: ýsa ný, heil, flökuð, nætursöltuð og reykt — og svo ýsuhakk, saltfiskur og saltaðar kinnar og nýr bútungur; saltsíld tvær tegundir; lúða niðurskorin í bita, grásleppa söltuð; skata og skötuselur. Svo fæst hér ýmislegt sem með fiski á að hafa: lýsi, tólg, kartöflur og líka egg. Nú fer fólk að koma í búðina, það streymir að. Þrír, fjórir, fimm bíða afgreiðslu í einu. ísak fær nóg að gera. Flest eru þetta rosknar húsmæður, en líka eldri karlar og einstaka barn. Flestir spyrja víst um ýsuflök, og fljótlega eru þau uppseld. Áttu bara ýsu? spyr ein- VÍKINGUR hver, og á víst við heila ýsu. Gamall maður sem var kominn út fyrir dyr með ýsuna sína, snýr inn aftur og segir við ísak: Heyrðu, skerðu hana vinur fyrir mig í stykki. Þegnar neysluþjóðfélags- ins eiga líklega ekki hnífa sem bíta. Annars fer því fjarri að fólkið kaupi bara ýsu, það kaupir margt annað, t.d. eru tveir eða þrír sem Fólk streymir inn og fsak fær nóg að gera. 19 Er ýsuaflinn fjórðungi meiri en skýrslur herma? Svo sem rakið er í greinarstúfnum Fiskur á hvers manns disk eru skýrslur um fiskneyslu íslendinga allsendis ófull- nægjandi. Tala sú sem skráð er í skýrslum Fiskifélags íslands fyrir árið 1978 gæti vel verið 17 til 18 þúsund tonnum of lág. Nú er sennilega meirihluti þess sem íslendingar eta af fiski, ýsa. Bágt er að hugsa sér að það kunni e.t.v. að vera um 10 þúsund tonn af ýsu sem ekki eru skráð í aflaskýrslur. Árið 1978 veiddust, samkvæmt tölum Fiskifélagsins, alls rúmlega 40 þúsund tonn af ýsu. Ætli rétt tala væri nær því að vera 50 þúsund tonn? Hafrannsóknastofnunin byggir tillögur sínar um aflahá- mark (1979: 45 þúsund tonn af ýsu) m.a. á aflaskýrslum Fiskifélagsins. Er sá grundvöllur ekki helst til ótraustur í þessu dæmi?

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.