Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1979, Side 56

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1979, Side 56
Myndarlegt fjárframlag Framkvæmdastofnunar til Sjóminjasafns í 9. tölublaði Víkings þessa árs var fjallað nokkuð um söfnun og varðveislu sjóminja og lýst hörmulegu ástandi þess máls. Síð- an hefur það gerst að stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins hefur samþykkt að leggja fram myndarlega (vonandi) fjárhæð til styrktar málefninu. Á fundi stjórnarinnar sem hald- inn var 23. október sl. í Grindavík var eftirfarandi samþykkt gerð, að tillögu forstjóranna Sverris Her- mannssonar og Tómasar Árna- sonar: „Stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins samþykkir að styrkja söfnun og varðveislu muna og minja, einkum sjóminja, með allt að \% af vaxtatekjum byggðasjóðs árlega, frá og með 1. janúar 1980 að telja. Fjármunum þessum verði ráð- stafað í samráði við þjóðminja- vörð.“ Á þessu ári mundi 1% af vaxta- tekjum byggðasjóðs nema u.þ.b. 15 milljónum króna, og líkur eru til að þær nemi um 20 milljónum á árinu 1980. Hér gæti því orðið um Leiðrétting Missagt var í 9. tölublaði Vík- ings (bls. 46) að Byggðasafnið í Hafnarfirði mundi falla til sjó- minjasafns. Þetta er rétt að því er tekur til sjóminja í því safni, en á ekki við safnið í heild. Víkingur biðst velvirðingar á þessari mis- sögn. FTH mjög gagnlegt framlag að ræða, þó að ekki sé víst að það verði 1%, heldur e.t.v. eitthvað minna. Ein- hverjum kann að þykja að orðun- um „allt að“ sé ofaukið í sam- þykktinni. En hvað um það, henni ber vissulega að fagna. Þór Magnússon þjóðminja- vörður sagði í stuttu samtali við Víking af þessu tilefni, að féð yrði áreiðanlega notað til sjóminja- safns. Gera mætti ráð fyrir að því yrði tvískipt: annars vegar yrði því varið til bygginga og hins vegar til að bjarga ýmsum sjóminjum frá glötun. Samþykkt stjórnar Fram- kvæmdastofnunar er tilefni til að árétta við samtök sjómanna og út- gerðarmanna: Látið nú málefni sjóminjasafns til ykkar taka. Tími er til kominn að taka um það ákvarðanir með hvaða hætti þið viljið styrkja það. Amerískur hermaður, sem staddur var í Iitlu þorpi í Frakk- landi, kom að máli við ensku- mælandi lögregluþjón og kvartaði yfir, að apótekarinn þarna í þorp- inu væri misindismaður og mesta sluddamenni. Honum sagðist svo frá, að hann hefði farið ásamt fé- laga sínum í apótekið, þar sem þeir hefðu ætlað að kaupa smokka. Þeir kunnu ekki orð í frönsku, og apótekarinn var engu betri í ensku, svo þeim reyndist erfitt að gera honum skiljanlegt, hvað þá vantaði. „Að lokum tók ég það ráð,“ sagði hann, „að ég tók út liminn og lagði hann fram á afgreiðslu- borðið ásamt peningum, og félagi minn gerði slíkt hið sama. Þá loksins virtist apótekarinn byrja að skilja, því hann brosti og kink- aði kolli. En hvað heldurðu svo að mannfýlan geri? Hann tekur út þann stærsta penis, sem ég hef nokkurntíma á æfi minni séð, lagði hann fram á borðið og sóp- aði til sín öllum peningunum.“ 56 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.