Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Blaðsíða 24
skipt í tvo 180 gráðu boga og loks
taka Englendingar upp núverandi
skiptingu eða 360 gráðurnar.
360 er merkileg tala því það er
engin önnur tala sem jafnmargar
tölur aðrar ganga uppí. Ég hugsa
að talan 360 sé komin frá
Babíloníumönnum ... að þeir
hafi haldið að það væru 360 dagar
í árinu og því séu gráðurnar á
kompásinum eitthvað tengdar
því.
— Getur verið að einhver æðri
speki sé bundin áttavitanum, t.d.
trúmál, þar sem þetta er hringur og
hringurinn er tákn guðdómsins?
— Ég veit það nú ekki . . . ég
hef aldrei heyrt minnst á það.
Aftur á móti notuðu Kínverjar
kompásinn fyrir hóróskóp .. .
notuðu hann til spádóma.
Hann glotti framan í mig
— Jæja Konni, nú hefur þú
runnið langt æviskeið þótt þú hafir
kannski ekki alltaf skautað á upp-
lýstum kongabrautum um dagana.
Áður en ég kveð þig og þakka þér
fyrir spjallið ætla ég að spyrja
hvort þú getir ekki sagt lesendum
blaðsins frá einhverjum minnis-
stæðum atburði sem hefur hent
Þ>g?
— Jú. Það skemmtilegasta og
jafnframt sérkennilegasta sem
komið hefur fyrir mig, var þegar
krabbinn stal af mér fölsku tönn-
unum.
Ég var að koma upp bryggjuna
hérna fyrir neðan, búinn að vera
að vinna lengi og orðinn slæptur;
lifði á sígarettum og kaffi í þá
daga. Svo er ekkert með það að ég
þarf að hósta og hósta út úr mér
tanngarðinum . . . hann bara
fýkur út úr mér, niður um gat á
bryggjunni og ofan í sjó. Ég sé
hvar tennurnar lenda og hleyp
upp eftir stiga ... ég ætlaði mér að
ná þeim aftur því þetta voru fín-
ustu tennur! Én þegar ég kem
aftur með stigann þá er krabbi að
skríða undan steini rétt hjá tönn-
unum. Og ekki er að orðlengja
það að hann læsir klónum utan
um tennurnar og dregur þær inn í
holuna sína. Það síðasta sem ég sá
til hans var hvar hann glotti
framan í mig!
— Og þú hefur ekkert heyrt frá
honum síðan?
— Ekki múkk! Ég geri ráð fyrir
að hann sé ánægður með tenn-
urnar og þær fari honum vel, því
maður segir gjarnan að þeir séu
ánægðir sem ekkert láta frá sér
heyra.
Skip strandaði við Landeyjasand, Einhver uppboðsgesta spyr,
þegar Einar Benediktsson var hvort hann muni vera í lagi.
sýslumaður í Rangárvallasýslu. — Já ætli það ekki, segir Einar.
Á uppboði, sem sýslumaður —Að minnsta kosti gátu þeir siglt
hélt, var meðal annars seldur skipinu í strand eftir honum.
áttavitin úr skipinu.
★
Drottin minn! Svo sporarnir eru til þess arna.
24
VÍKINGUR