Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Blaðsíða 32
rúmsjó og vilja þá meina að ýms-
um litbrigðum (grænleitur, ljós-
leitur o.s.frv.) fylgi fiskigengd.
Hvorutveggja getur staðist. Það er
staðreynd að fjöldi svifþörunga
(af mismunandi tegundum) gefur
sjónum oft mismunandi litblæ.
Fiskur hér við land gengur ekki
beinlínis í þörungasúpu, en með
henni vaknar oftast mikið líf
rauðátu og annarra smærri dýra
sem fiskur leitar svo í. Ekki þarf að
taka fram að „óvenjulegur" litur á
sjónum þarf ekki að vera af völd-
um þörunga eins og t.d. eftir
óveður, þegar sjórinn fær á sig
annan litblæ vegna smá súrefnis-
bóla sem hafa blandast yfirborðs-
sjónum.
Sjaldan er litur sjávar vegna
þörunga (eða af öðrum orsökum)
mjög afgerandi. Ekki þarf þó að
deila um litinn þegar sjór verður
rauður sem blóð. Mergð vissra
svifþörunga sem eru rauðir að lit
(eða hafa í sér rauðlit korn af
ýmsum toga) getur orðið svo mikil
í sjónum að hann verður nánast
sem blóð á að líta. Slík fyrirbæri
eru oftar en hitt bundin við frekar
smá svæði. Erlendis er þetta sum-
staðar mjög vel þekkt fyrirbæri og
nefnist á ensku „red tide“. Þar
getur slíkur blóðsjór fyllt heilu
firðina eða nokkur hafflæmi og
stundum eru á ferð eitraðir þör-
ungar sem valda fjöldadauða hjá
fiskum. Þá má geta þess að svif-
þörungur af ætt blágrænþörunga
ljær yfirborðssjó Rauðahafsins
rauðleita slikju svo nafngiftin er
ekki úr lausu lofti gripin. Eins og
fram kemur hér á eftir eru svif-
þörungar ekki í öllum tilfellum
valdir að þessu fyrirbæri heldur
stundum náskyldar lífverur sem
teljast til dýraríkisins, þ.e. frum-
dýr.
Blóðsjór er þekkt fyrirbæri úr
íslenskum sjó, en verður að teljast
frekar sjaldgæft. Höfundur kann
aðeins að nefna fáein dæmi um
slíkt. í ferðabók Ólafs Ólavíusar
segir höfundur bókarinnar frá
slíkum blóðsjó, er hann, árið 1776,
átti leið á bát út Mjóafjörð (eystri).
„Svo var sjórinn dökkur að ár-
arnar sáust varla þegar þeim var
dyfið í hann . ..“, segir Ólafur. Það
kemur fram í frásögn hans að
hann gerði sér grein fyrir því að
hér voru á ferð einhverjar smá-
sæjar lífverur. Það kemur því ekki
með öllu að óvörum er danski
svifþörungafræðingurinn Ove
Paulsen upplýsir í ritgerð um
plöntusvif í íslenskum sjó, ritaðri
rétt eftir aldamót (1904), að hann
hafi séð blóðsjó í Seyðisfirði
(eystra) og heimamenn segi slíkt
fyrirbrigði ekki óalgengt þar um
slóðir. Hinn danski vísindamaður
tók sýni af fyrirbærinu og reynd-
ust hér ekki á ferð svifþörungar
heldur mergð smásærra frumdýra
(Protozoa), og gerir hann því
nánast skóna að þessi dýrahópur
eigi ávallt hlut að máli er blóðsjór
myndist við Austfirði, en ekki
svifþörungar. Slíkt er þó aðeins
tilgáta sem ekki þarf endilega að
vera rétt. Karl Gunnarsson þör-
Utgeröarmenn
Vélstjórar
Önnumst allar
raílagnir og viögeröir
í skipum
og verksmiöjum
Símar:
13309 og 19477
Gamla góða merkið
TRETORN
Merki stígvélanna sem sjó-
menn þekkja vegna gæð-
anna.
Stígvélin sem sérstaklega
eru framleidd með þarfir
sjómanna fyrir augum.
EINKAUMBOÐ
JÓN BERGSSON
H/F
LANGHOLTSVEGI 82
REYKJAVÍK
SÍMI36579
Fáanleg:
Með eða án trésóla.
Með eða án karfahlífar
32
VÍKINGUR