Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Qupperneq 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Qupperneq 37
Varðskipið Týr. sem gott skip í þau verkefni sem honum eru ætluð. Árvakur getur líka sinnt ýmsum verkefnum þegar vá ber að dyrum og það hefur hann gert. Hann getur farið inn á einangraða staði sem varðskipin komast ekki inn á, vegna þess að hann er svo grunn- skreiður . . . staði eins og Kópa- sker og Djúpavog og fleiri hafnir. Við búum alltaf við þá hættu að afskekktir staðir geti einangrast, t.d. vegna snjóflóða. Því er það visst öryggisatriði fyrir þjóðina að eiga skip eins og Árvakur. — Hafa skipherrar hjá Land- helgisgæslunni verið með í ráðum og hefur þeim verið tilkynnt hvernig þessum málum skuli hátt- að ef Árvakur verður seldur? — Nei, maður fær ekkert að heyra. Stjómmálamenn tala ekki við aðra en forstjórana. Aðrir eru ekki spurðir ráða. Síðan eru það skoðanir viðkomandi forstjóra sem hafðar eru til hliðsjónar og þær geta nú verið dálítið umdeil- anlegar, svo ekki sé meira sagt. Forstjórar eru umdeilanlegir eins og aðrir menn. En ég veit ekki til þess að ráðamenn hafi nokkru sinni leitað til þeirra manna sem raunverulega þurfa að fram- kvæma verkið. Og það gerir for- stjórinn okkar ekki heldur. Mér er ekki kunnugt um að forstjóri Landhelgisgæslunnar hafi séð bauju tekna upp úr sjó. Þegar honum er sagt að það þýði ekk- ert. .. að það sé ekki hægt að annast baujumar á stóru varð- skipunum, þá segir hann bara: Þá skiptum við um baujur! En það er bara ekki á hans valdi að ákvarða slíkt. Það ákveða stjómvöld. Stéttarsamtök innan F.F.S.Í. leyfa það aldrei að for- stjóri úti í bæ geti sagt að bauju- kerfið sé ónýtt, að það verði að endumýja það. Við viljum fá rannsókn á málinu. Að henni lok- inni erum við reiðubúnir að taka það til athugunar. Á meðan ekki VÍKINGUR er sannað fyrir okkur að annað kerfi sé betra en það sem við höf- um, þá munum við ekki leggja blessun okkar yfir að skipt verði um baujur. Að lokinni rannsókn er það stjórnvalda að ákveða hvort þau vilji leggja í þann kostnað að skipta um baujukerfi og síðan er það Vitamálastofnun- ar eða annarra aðila að fram- kvæma verkið. Allar útfærslur gerðar af handahófi — Nú hefur heyrst að það standi líka til að selja varðskipið Þór. Eigum við íslendingar kannski of mikið af varðskipum? — Enginn stjómmálaflokkur hefur landhelgismál á sinni stefnuskrá. Það hefur enginn gert úttekt á því hvemig landhelgin eigi að verjast eða hvað við þurf- um mikið til þess. Það hefur eng- inn flokkur gert og engin ríkis- stjóm sem ég veit um. Það eina sem hefur verið gert í þessum málum er samþykkt landgrunns- laganna frá 1948, þar sem sú stefna var mörkuð að við ættum að eignast landgrunnið í framtíð- 'inni. En í þessum lögum var engin áætlun um það hvenær við ættum að færa út. Því hafa allar útfærslur á land- helginni í gegnum árin verið gerðar af handahófi. Þar voru engar áætlanir gerðar sem lágu til hliðsjónar. Enda kom það á dag- inn að okkur vantaði einmitt tæki og útbúnað þegar mest reið á. Menn réttu bara upp höndina og sögðu: Jæja, nú skulum við færa út landhelgina, það er vinsælt mál! Og síðan er það bara ákveðið. Engin áætlun, hvorki um það hvemig standa skyldi að málun- um, né hvað við þyrftum til þess. Það var bara látið ráðast hvemig til tækist. Ef við hefðum ekki átt nýju pólsku skuttogarana við síð- ustu útfærslu, er ekki gott að segja hvemig farið hefði, eins og Pétur Guðjónsson hefur leitt rök að í skrifum um þessi mál. Norðmenn aftur á móti setjast niður og gera áætlun. Nú ætlum við að færa út, segja þeir, og til þess að það megi takast verðum við að búast við svo og svo mikilli andstöðu. Og til þess að mæta henni þurfum við að útbúa okkur í þetta. Þannig er nú það. En í sambandi við það þegar 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.