Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Blaðsíða 49
Bátar þorpsbúa með veiðarfærum við prik í flæðarmálinu. Amarfell við akkeri við Dawes-eyju í baksýn. (Mynd Þ.H.)
rúmlega hálfnuð fór negrinn á
hausinn, líbanir urðu blankir og
því lét svisslendingurinn loka lest-
unum. Hafnarstjórinn heyrði af
þessu og þar sem hann hafði ekki
fengið nógu rausnarlega gjöf frá
innflytjendum ákvað hann að
skipið yrði rekið frá bryggju.
Meðan við vorum við bryggju
leit vinur vor lóðsinn nær daglega
um borð. Flest kvöld var hann að
fá gesti og ætlaði að athuga hvort
við gætum ekki hjálpað honum
um lítilræði af skreið í soðið. Þar
sem hann veitti okkur ýmsar upp-
lýsingar og hjálp var ekki séð á
eftir skreiðinni í hann. Var mest af
lóðsskreiðinni fengið hjá innflytj-
enda sem hafði skilning á nauðsyn
kunnungsskapar við einkennis-
klædda innfædda. Fór ég nokkr-
um sinnum í land með lóðsinum.
Fyrsta skiptið varð ég afskaplega
undrandi. Ég hafði ekki gert mér
VÍKINGUR
hugmynd um hvernig umhorfs
væri í stórborg sem hefði á
skömmum tíma tekið geysilegum
breytingum. Fyrir aldarfjórðungi,
þegar landið laut stjórn breta,
lifðu flestir á landbúnaði og þó
aðallega akuryrkju. Gat brugðið
til beggja vona með uppskeru.
Sum árin var hægt að flytja út
hrísgrjón. Önnur ár var hungurs-
neyð, þar sem ekki voru efni á að
flytja inn dýra matvöru fyrir allan
almenning. Helstu útflutningsvör-
ur voru kol, harðviður og land-
búnaðarafurðir.
En síðan átti olían eftir að
breyta miklu. Nígería er í dag
meiri háttar olíuútflutningsland.
Inn í landið kom mikill auður og
var honum, eins og auð yfirleitt,
misskipt. I borgum var vinnu að fá
og flykktist sveitafólkið til borg-
anna. Fimmfaldaðist íbúafjöldi
höfuðborgarinnar Lagos á fáum
árum. Ekki var hægt að sjá öllu
þessu liði fyrir atvinnu og hús-
næði. Risu því fátæktarhverfin í
útjöðrum stórborganna. í slíkum
jarðvegi sprettur misjafn gróður.
Glæpir hafa stóraukist og Lagos er
sögð stórhættuleg borg þar sem
enginn er hultur um líf sitt. Og þó
stjórnvöld láti handtaka glæpa-
menn og lífláta þá opinberlega er
lítið lát á.
Vinnu við losun skipsins varð að
vera lokið einni stundu fyrir sól-
arlag. Skreiðinni var ekið til borg-
ar er heitir Aba og er í 50 km fjar-
lægð. Neituðu bílstjórar að vera á
ferð eftir myrkur nteð jafn dýr-
mætan farm og skreið. Sögðu þeir
að setið yrði fyrir þeim, þeir
rændir og drepnir. I landi með
jafn mikið atvinnuleysi og þar sem
bílstjórastöður eru eftirsóttar, er
ekki ástæða til að rengja þá.
Við höfðum mikinn viðbúnað
49