Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Síða 56

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Síða 56
Þar sem brottför hafði dregist úr hömlu var lóðsinn búinn að naga neglur upp í kviku. Hann átti að fara með lóðsbát frá Dawes eyju eftir að hafa skilað okkur við akk- eri til Bonny og taka þaðan skip til Port Harcourt. Var greinilegt að einherjum toppnum hjá hafnar- stjóm hafði verið greitt vel fyrir, því svo lá þessum annars rólegu mönnum á að koma skipinu upp- eftir. Þegar ljóst var að okkur seink- aði ákvað einhver yfirlóðs í landi að vegna hættulegs ástands væri okkur ekki leyft að leggjast við Dawes eyju heldur ættum við að fara niður til Bonny þorps og leggjast þar. Þó að Bonny sé aðal- olíuútskipunarhöfn Nígeríu og að himinninn í kringum bæinn sé uppljómaður af eidum olíu- vinnslustöðvanna var ekki nokkur leið að fá keypt og afgreidd 30 tonn af olíu. Það tók rúma tvo sólarhringa að fá réttu farmpappírana en án þeirra máttum við ekki sigla. Klukkan 07:00 að morgni laugardags fll. október varakkeri híft upp og siglt niður Bonny fljót að Fairway bauju og áleiðis til las Palmas. Menn höfðu gætt þess í Nígeríu að láta hveijum degi nægja sínar þjáningar. Sífelldar tafir og frest- anir röskuðu ekki svo ró manna. En að Nígeríuvist lokinni kom til- hlökkunin að komast heim. Þá fyrst var hægt að byrja að telja daganna. Ferðin upp til Kanaríeyja sóttist seint. Alla leiðina var mótstraum- ur ca '/2—2 sjómílur og hluta leið- arinnar var kaldi á móti. Ekki var hægt að fá fulla orku út úr aðal- vélinni vegna mikils sjávarhita. Var lofthiti í vélarrúmi oft yfir 40°C. Meðan við lágum á fljótinu er líklegt að safnast hafi mikill gróður á botninn. Allt þetta gerði það að verkum að meðalhraði frá Bonny til Las Palmas var um 9 sjómílur. Þegar við vorum vestur af Senegal mættum við Háafossi, sem var á leið til Lagos. Var skip- unum snúið svo að þau sigldu samsíða meðan höfð voru vöru- skipti . . . við létum þá hafa kryst- alla fyrir Lyngby radío í Dan- mörku og fengum í staðinn bjór með sunnudagssteikinni og dag- blöð að heiman sem við höfðum ekki séð í 70 daga. Þegar Háifoss sneri á suður var ekki laust við að maður kenndi í brjósti um þá. Siglingin til Las Palmas tók 12 sólarhringa. Þar var stoppað í 6 tíma meðan tekin var olía og vatn sem var að minnsta kosti jafnvont Nígeríuvatni. Fóðrið var losað í 5000 manna suður írskum smábæ, New Ross. Þar höfðum við næturvörð sem talaði um „okkur í 1RA“ milli þess sem hann las í amerískum tíma- ritum um sóðalegustu morð sög- unnar. Þegar svefn sótti á hann fletti hann upp í vopnakatalógum sér til hressingar. Sem íslendingur var maður auðfúsugestur, því höfuðóvinur- inn Bretar höfðu borið lægri hlut í þorskastríðinu. írar lifa mikið í fortíðinni og ég varð var við al- menna andúð á englendingum. Nýleg brú tengdi bæjarhluta sam- an yfir fljót. Skilti var á henni með áletrun sem sagði að brú þessi héti eftir manni sem var tekinn af lífi eftir páskauppreisnina 1916. Þannig tengdi þessi brú meira en bæ heldur einnig nútíð og for- tíð... Eftir losun og brottför frá New Ross bar fátt til tíðinda annað en að við lentum í illviðri í Erma- sundi og töfðumst um 4 daga á tveggja daga leið frá New Ross til Antwerpen. Heim komum við 17. nóvember lestaðir áburði og stykkjavöru frá Antwerpen og Rotterdam. voru þá liðnir 100 dagar og 10 tímarfrá því lagt var í hann til Nígeríu. VÍKINGUR 0 fil ÍF £ 1 T p R ■ fi IK & K fí D fí ? L Ú & U N N 11 i I P U K fi S T ■ M fi K / N S K I L T N m K ■ p E 1 ■ fl Pt ■ i V I N fí L £ a N ■ 0 K K fl N a fi N I j D 'fí K Nj \ G T R. * fí M 0 M I L X Pr N s ■ u l T fí R s N £ t T A ■ T\ r L T fl K fi & 1 N ■ 6 1 t ■ í S N ft M F ■R -> fl ú 3 F R. £ V J U Æ s 1 KÁ il 6» s> ■ S £ L U R Lausn á síðustu krossgátu 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.