Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Síða 65

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Síða 65
Páll Guðlaugsson, sjómaður: Með skottu á bakinu Ég ætla að segja frá lífsreynslu sem ég varð fyrir á ævibraut minni og tel ég að þar hafi ég komist næst því að kveðja þennan heim. Það var árið 1931 að ég var á vetrarvertíð í Keflavík. í þetta sinn var ég ráðinn á Sæfara, sem var 14 tonna bátur í eigu Alberts Guðmundssonar. Ólafur bróðir hans var skipstjóri. Algengast var á þessum árum að aðkomumenn sem voru á sjó eða í landi héldu til heima hjá út- gerðarmönnunum. Þannig var þetta með mig. Ég deildi herbergi Páll Guðlaugsson sjómaður. Hann lauk við Stýrimanna- skólann á Akureyri árið 1939 og var síðan farsæll skipstjóri í mörg ár. Lengst af var hann með Hannes Hafstein EA og Björgvin EA. með öðrum manni heima hjá Alberti og þar hafði ég fæði og þjónustu, og kaup frá áramótum fram til 11. maí. Það var 750 krónur, hæsta kaup sem þá var greitt fyrir vertíðina. Við höfðum frítt fæði, húsnæði og sjógalla, en ferðirnar þurftum við að greiða sjálfir. Heimamenn munu flestir hafa verið upp á hlut, en kaup- trygging þekktist ekki. Metnaður okkar félaga, mín og strákanna sem með mér voru frá Dalvík, var sá að koma með sem mest af kaupinu heim í lokin, því við fórum þetta til að hjálpa for- eldrum okkar en ekki til að eyða kaupinu í okkar þágu. Ég man eftir einum óþarfa sem ég keypti einn veturinn sem ég var fyrir sunnan. Það var flaska af þriggja stjömu koníaki sem ég keypti um borð í þýskum togara. Hún kostaði tíu krónur. En tapp- inn var ekki tekinn úr henni fyrr en heim var komið. Þá var inni- haldið veitt í smáskömmtum körlum sem þótti þetta sælgæti og nýnæmi mikið miðað við Spánar- vínin sem þá voru aðallega á boð- stólum. Nú, ég ætla að segja frá því sem fyrir mig bar veturinn 1931. Það var á annan í páskum að við strákarnir vorum að ganga úti. Það var besta veður og búist við róðri, enda fór það svo að við vorum kallaðir um klukkan hálf sjö. Ég hafði fataskipti og átti svo að borða áður en haldið var í hann. En aldrei þessu vant hafði ég enga matarlyst. Var ég þó ekki vanur að fúlsa við steiktu kjöti og ávaxtagraut. En hvernig sem á því stóð þá var lystin engin í þetta sinn. Ég fann hvergi til, en einhver slappleiki var í mér. En á sjóinn ætlaði ég að fara þrátt fyrir lurð- una. Húsmóðirin spurði hvort ég væri eitthvað lasinn, því það var óvanalegt að maður hefði ekki matarlyst á þessum árum. Ég sagði sem var að ég fyndi hvergi til en væri eitthvað slappur, það yrði sjálfsagt horfið á morgun. En ekki kom til mála að ég færi á sjóinn í þetta sinn og var annar maður fenginn í minn stað. Lét ég það gott heita, því ég bjóst ekki við að þetta væri neitt alvarlegt. Mér var nú sagt að fara í rúmið og mæla mig. 1 ljós kom að ég var með 39 stiga hita. Svaf ég af nóttina. Um morg- uninn var læknir sóttur og bank- aði hann mig allan og hlustaði en ekki komst hann að því hvað að mér væri. Seinna komst hann þó að því að ég hefði tekið berklabakteríuna. En hvar eða hvernig hef ég aldrei getað komist að. Legan varð lengri en ég hélt hún yrði í fyrstu. í fimm vikur lá ég þarna í rúminu og var ekki orðinn annað en beinin og skinn- ið. Ég hafði enga lyst á mat og fann ekki bragð af neinu. Ekki vantaði þó að allt væri reynt til þess að koma einhverju niður í mig. Mér var boðið allt það besta sem völ var á, ávextir, egg og rjómi, en ekkert dugði. Ástand mitt var nú orðið þannig að mér var alveg sama hvort ég lifði eða færi yfir. Ég var orðinn þreklaus bæði til líkama og sálar. VÍKINGUR 65

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.