Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1986, Qupperneq 27
Sparisjóður
Kristján Steinsson ráðinn
starfsmaður. Þá var og sam-
þykkt að um haustið yrði tek-
in upp sú starfstilhögun að
einn maður starfaði allan
daginn, ein stúlka allan dag-
inn og ein stúlka frá kl. 13 .
Um haustið, þann 16. okt-
óber, var samþykkt að bjóða
nýjum starfsmanni, Hallgrimi
G. Jónssyni, vinnu frá kl. 13
þar til afgreiðslu og uppgjöri
væri lokið að kveldi. Hóf hann
þar með langan starfsferil hjá
sparisjóðnum og er nú spari-
sjóðsstjóri. En þann 4. mars
1964 lét Tómas Guðjónsson
af störfum sem umsjónar-
maður sparisjóðsins og við
þvi starfi tók Kristján Steins-
son og fékk hann titilinn
sparisjóðsstjóri.
Húsnæðismálin
Þann 23. mars 1969 var á
aðalfundi rætt um að byggja
hús með V.S.F.Í. og F.F.S.Í..
Var það hugsað sem félags-
miðstöð til frambúðar fyrir
þessa aðila. Sparisjóðurinn
og félögin yrðu þá til húsa á
sama stað, sem þótti mjög
heppilegt. Snemma sumars
kom formaður sparisjóðsins,
Jón Júlíusson, aö máli við
Örn Steinsson formann
Vélstjórafélags íslands og
benti á að lóð væri hægt að fá
undir félagsheimili skammt
frá Héðinshöfða. Á fundi í
Vélstjórafélagi íslands var
ákveðið að skrifa stjórn
sparisjóðsins og F.F.S.i. og
athuga hvort áhugi væri á því
að sækja um þessa lóð. Svo
fór að það var gert og fengu
þessir aðilar 5 þúsund fer-
metra lóð og byggðu þar hið
glæsilega hús sitt. Húsnæði
sparisjóðsins að Bárugötu
11 var orðið alltof litið, sökum
þess að hann var í örum
vexti. Árið 1971 flutti spari-
sjóöurinn starfsemi sina að
Hátúni 4a en þar hafði fengist
189 fermetra húsnæði. Það
var svo þann 4. nóvember
1977 að sparisjóöurinn flutti í
núverandi húsnæði sitt að
Borgartúni 18 en þá hafði all-
ur tækja- og vélakostur hans
verið endurnýjaður. Á því 6
ára timabili, sem sjóðurinn
starfaði i Hátúni 4a sexföld-
uðust innistæðurnar í sjóðn-
um og námu 770 milljónum
króna þegar sjóðurinn hóf
starfsemi sina í eigin hús-
næði að Borgartúni 18.
Útibúsdraumar
Vegna sifelldrar aukningar á
viðskiptum hefur sparisjóður-
inn haft hug á að útvikka
starfsemi sina. Hefur áhugi
þvi lengi verið á þvi að opna
útibú en öllum umsóknum
hefur verið hafnað, þar til nú
að opnað hefur verið útibú að
Siðumúla 1. Það voru fyrst og
fremst ný lög um banka og
sparisjóði sem urðu til þess
að hægt var að opna útibú. í
þessum nýju lögum segir aö
opna megi útibú en það skil-
yrði fylgir að fasteignir þær
sem notaðar eru undir
starfsemina megi ekki nema
hærri fjárhæð en 65% af eig-
in fé sparisjóðsins. Þessum
skilyrðum fullnægir Spari-
sjóður vélstjóra.
Á árinu 1965 tók sparisjóður-
inn upp vélabókhald og frá
1977 hafa allir sparisjóös-
reikningar verið tölvuunnir. Á
árinu 1984 var tæknivæðing-
in enn aukin en þá festi spari-
sjóðurinn kaup á fullkomnum
tölvubúnaði, sem tengdur
hefur verið reiknistofu bank-
anna. Þá hefur hraðbanka
verið komiö upp, sem starfar
allan sólarhringinn, þannig að
Sparisjóður vélstjóra er i dag
jafn vel tæknivæddur og frek-
ast er kostur hjá banka eða
sparisjóði.
Viðskitpavinir við af-
greiðsluborðið geta virt
fyrir sér útsýnið yfir
Sundin og fjöllin þar
fyrir norðan, en sé
kuldalegt út að líta má
alltaf orna sér við hlý-
legt viðmót starfsfólks
sparisjóðsins.