Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1986, Qupperneq 50
Aukið öryggi er g
Sigurdór
Sigurdórsson
blaðamaður
Síðari
hluti viðtals
við Magnús
Jóhannes-
son, sigl-
ingamála-
stjóra
Magnús Jóhannesson
siglingamálastjóri.
50 VÍKINGUR
Hér kemur síðari hluti viðtalsins við Magnús Jóhannesson siglingamálastjóra, en
fyrri hlutinn var í síðasta blaði. Því er ekki aö leyna að nokkur mistök urðu okkur á
í sambandi við birtingu fyrri hlutans, við nefndum ekki að meira væri eftir og teikn-
ingar, sem áttu að fylgja þessum hluta, voru prentaðar þá. En það sem mestu
skiptir er að það sem Magnús hefur að segja hefur mikla þýðingu fyrir sjómenn og
það kemst óbrenglað til skila. Við biðjumst velvirðingar á mistökunum. Ritstjóri.
— Mig langar að skjóta
hér inn einni spurningu. Á
undanförnum árum hefur
mjög margt verið gert í
öryggismálum sjómanna;
þykir þér vaxandi skilningur
sjómanna á þessum máium,
í Ijósi þess að allt er þetta
gagnslaust nema sjómenn
sjálfir fari eftir þeim reglum
sem settar eru?
„Ég er á því að vaxandi
skilningur sé hjá sjómönnum
á öryggismálunum og ég er
sannfærður um að það hefur
orðið breyting á hugsunar-
hætti manna hvaö varðar þau
mál. Ég er hinsvegar sann-
færður um að sú breyting
getur gengið til baka skyndi-
lega ef ekki er ýtt á þessi mál
og þeim ævinlega haldið vak-
andi. Og, enda þótt margt hafi
áunnist, er samt ýmislegt enn
i ólagi sem veröur að kippa i
lag. Dæmi um það eru slysa-
skráningar. Auðvitað vilja allir
að enga slysaskráningu
þyrfti, það væru engin slys.
En þau eiga sér stað því mið-
ur og það er alveg nauðsyn-
legt að skrá þau sem ná-
kvæmast, svo hægt sé að
vinna fyrirbyggjandi störf,
læra af þeim slysum sem
verða. Menn hafa það á til-
finningunni hvar slysahættan
er mest en þaö er ekki nóg.
Skráningin verður að vera
nákvæm, fjöldi slysa, hvar um
borð þau eiga sér stað og við
hvaða aðstæður, svo dæmi
séu nefnd. Þaö var sett inní
siglingarlögin i fyrra kvöö á
skipstjóra aö gera þetta, en
þvi miður er misbrestur á þvi
aö þeir sinni þessari skyldu
sinni. Eins vantar mikið á
hvað varöar úrvinnsluna. Það
er ekki nóg að sjómenn skili
skýrslum ef ekki er unniö úr
þeim. i þessum efnum tel ég
að mikið verk sé að vinna."
Eldvarnir og björgun-
aræfingar
„Eitt af því sem við ætlum
að gera kröfur um er að menn
framfylgi reglum um eld-
varna- og björgunaræfingar
um borð í fiskiskipum. Sigl-
ingamálastofnun hefur látið
útbúa leiöbeiningar fyrir sjó-
menn. Við ætlum í fyrstu lotu
að snúa okkur að skipum yfir
300 tonnum en færa okkur
svo niður í minni skipin. Kröf-
una um að björgunaræfingar
séu haldnar mánaðarlega tel
ég raunar vera óraunhæfa
eins og málin standa í dag.
Við höfum hugsað okkur að
gera kröfu til þess þegar
meira en fjórðungur áhafnar
er nýr, þá séu gerðaræfingar,
og eigi sjaldnar en tvisvar á
ári. Ef þessu verður ekki
framfylgt munum við ekki
gefa út pappíra fyrir skipið."
„Síðan munum viö snúa
okkur að minni fiskiskipunum