Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Qupperneq 6
Kjartan Karlsson Súðvíkingur, er fæddur þar og uppalinn.
Hann er sjómaður, á og gerir út Hafrúnu ÍS, sem er tólf tonna bátur.
Það er oft erfitt að skýra þá taug sem myndast
milli manns og báts, hún er einkennileg.
Þannig taug er milli Kjartans og Hafrúnar
Lítið að gera fyrir
koppa
UdDDCl
„Það er orðið lítið að gera fyrir þessa koppa, ég er
með 20 tonna þorskkvóta, það er alltof sumt,“ sagði
Kjartan Karlsson á Súðavík. Hann var niður á bryggju,
var að fara mála Hafrúnu. Þeirtímar voru að Hafrún var
að veiðum mestan hluta ársins. Þá var Ijómi yfir út-
gerðinni og þeim sjómönnum sem réru þessum bát.
Það er ekki bara Hafrún sem baðast í fyrri Ijóma.
„Það er hörmung að sjá öll þessi sjávarpláss, það
sést varla maður á bryggjunum. Þetta er hrikalegt."
Tal okkar berst að Súðavík. Kjartan segir að hann
hafi ekki misst neina nákomna ættingja í snjóflóðinu
hrikalega í janúar 1995. Að sjálfsögðu þekkti hann það
fólk sem fórst. Það féll snjóflóð á húsið hans og hann
varð að flytja. Byggði nýtt hús. Það kom ekki til greina
að flytja.
Það er enginn sjávarafli nema rækja unninn á Súða-
vík. Kjartan hefur áhyggjur.
„Hvað gerist bregðist rækjan enn frekar? Þá verður
Súðavík svefnbær. f vetur fékk ég 50 tonn af rækju, en
þau voru hundrað árið á undan. Þetta er ekki nógu
gott.“
Það er byssa í stefni Hafrúnar, sem minnir á hrefnu-
veiðar og þegar ég tek að tala um þær, segir Kjartan:
„Síðasta hrefnan var veidd 1986. Það var nú meiri
vitleysan sem gekk á í vor út af hrefnuveiðum. Ég segi
og fullyrði að það hafi verið lygi í Davið Oddssyni þegar
hann sagði að ekki væri hægt að byrja hrefnuveiðar
þar sem verið væri að leita að nýjum skutli. Það er ekki
rétt, Normenn eru að leita ódýrari leiða til að drepa
hana.“
Kysi andskotann
Það er sem oftar, kvótinn er það sem stendur mönn-
um næst, hann kemur í veg fyrir að menn séu á sjó í
blíðskaparveðri.
„Ég segi bara eins og Reynir Torfason, ég kysi and-
skotann sjálfan til að losna undan kvótanum, það er
6
Sjómannablaðið Víkingur