Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Blaðsíða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Blaðsíða 18
Dómur Hæstaréttar í kvótamálinu hefur vakið mikla athygli og umræð- ur. Reynt hefur verið að túlka dóminn á ýmsa vegu en Guðjón A. Krist- jánsson forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins segir dóminn ótvíræða staðfestingu á ályktun sambandsins frá árinu 1990 Verður að breyta kerfinu verulega „Ég tel að hér sé um mjög merkilegan dóm að ræða. Ekki bara vegna þeirrar niðurstöðu sem dómurinn kemst að um að ekki sé hægt að neita mönnum um veiðileyfi heldur líka vegna þess rökstuðnings sem kemur fram í dóminum. Þar kemur fram að virða verði bæði jafnræðis- og atvinnu- frelsisregluna að þessu leyti og sjávarútvegurinn sé ekkert undanþegin ákvæðum stjórn- arskrárinnar um að menn skuli eiga frelsi til atvinnu. Það þurfi að ganga fyrir öllu öðru og afar ríkar ástæður þurfi til að tak- marka atvinnufrelsið," sagði Guðjón A. Kristjánsson i sam- tali við Sjómannablaðið Víking um dóm Hæstaréttar. „í rökstuðningi dómsins er vitnað til þess sem gert var 1983 er lögin voru sett og sagt að það sé hægt að finna því stað að grípa megi til ákveðinn aðgerða um skamman tíma til þess að vernda fiskistofna. En með sama hætti sé ekki hægt að viðhalda þeim aðgerðum í langan tíma. Þótt tímabundnar aðgerðir af þessu tagi til varnar hruni fiskistofna kunni að hafa verið réttlætanlegar, en um það sé ekki dæmt í málinu, verði ekki séð að rökbundin nauðsyn hnigi til þess að lög- binda um ókomna tíð þá mis- „Þetta segir mér einf aldlega að tak- mörkun á þvi að veiða fisk þar sem stofnar eru ekki í hættu eigi ekki rétt á sér. Það þurfi að vera afar rík rök til þess að það megi mismuna mönnum eins og gert hefur verið í kvótalögun- um hvað varðar aðgang að sameigin- legri eign þjóðarinnar og þá aðeins í skamman tuna. Þarna draga dómar- arnir eflaust lærdóm af því hvernig fiskistofnar stækka og minnka og hvernig allur raunveruleiki er í nátt- úrufarinu. Það er erfitt að segja fyrir um mörg ár fram í tímann að astandið verði svona eða hinsegin.“ munun sem leiðir af þessari reglu. Þetta segir mér einfaldlega að takmörkun á því að veiða fisk þar sem stofnar eru ekki í hættu eigi ekki rétt á sér. Það þurfi að vera afar rík rök til þess að það megi mismuna mönnum eins og gert hefur verið í kvótalögunum hvað varðar aðgang að sameigin- legri eign þjóðarinnar og þá aðeins í skamman tíma. Þarna draga dómararnir eflaust lær- dóm af því hvernig fiskistofnar stækka og minnka og hvernig allur raunveruleiki er í náttúru- farinu. Það er erfitt að segja fyrir um mörg ár fram í tímann að ástandið verði svona eða hinsegin," sagði Guðjón. -Er það þá þitt álit að sam- kvæmt þessu sé ekki hægt að banna mönnum að sækja í fisktegundir sem ekki þarf að vernda? „Ég sé ekki betur. Eftir að hafa lesið dóminn og farið yfir rökfærsluna fæ ég ekki annað séð en nákvæmlega sömu rök eigi við um kvótasetninguna. Það er ekki hægt að meina mönnum að hafa veiðileyfi því ekki ber brýna nauðsyn til að hafa það form til að vernda fiskistofnana. Ef fiskistofnar eru ekki veiddir árum saman að þeim mörkum sem stjórn- 18 SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.