Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Blaðsíða 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Blaðsíða 52
Aðfangadagskvöld stórt svæði og sáum við ekki nema brot af því. Þarna ætlaði Siggi Bryn. að kaupa sér skó en gekk illa að fá rétta stærð þar sem hann var svo fótstór. Virtist ekkert vera til yfir skóstærð 43. Að síðustu keypti hann strigaskó sem hann gat troðið sér í. Þarna keypti ég ársbirgðir af gins- engi sem kostuðu sama og mánaðarskammtur hér. Síðasta kvöldið þarna breyttum við til og fórum á annan veitingastað sem var í hóteli sem heitir Mandarín. Afar falleg bygging í gömlum austurlenskum stíl. Fyrsti maður sem við sáum þar var Morteinsen hinn fær- eyski sem ég hef minnst á áður. Settist hann hjá okkur og borðaði með okkur og var hinn ræðnasti. Var komið víða við í umræðunum. Þegar kom að þvi að borga reikninginn, þá dró Morteinsen upp veskið og borgaði öll herleg- heitin. Fórum við síðan niður í kjallara, en þar var einhvers konar næturklúbbur. Bauð Morteinsen upp á glas og sátum við þarna dá- góða stund. Voru þarna meyjar fagrar á stjákli kringum borðin, að því er virtist í vafasömum tilgangi. Segir Morteinsen þá að ef við heíðum áhuga þá væri lykillinn af herberginu hans falur en hann bjó einmitt á þessu hóteli. Greiðsla til þeirra væri heldur ekkert vanda- mál, hann skyldi sjá um það. Þetta var of mikið fýrir sveitamenn norðan af hjara veraldar, kvöddum við í snatri og fór- um heim á hótel enda stór dagur framundan. Blásið til brottfarar Brottfarardagurinn, 19. des., rann upp en er við vomm komnir um borð kom í ljós að Sigurður hafði gleymt jólahangikjötslærinu á hótelinu. Var gerður út maður til að sækja það en þá var búið að hnupla því og það glatað. Þær fréttir höfðu komið heiman að hugsan- legt væri að við stoppuðum á Spáni og þar yrðu gerðar ýmsar endurbætur á skipinu en þetta atriði myndi skýrast síðar. Kvöddum við nú Pusan og héldum af stað í ágætis veðri. Stóðu þeir Einar og Magnús eftir á hafnarbakkanum og veifúðu. Ætluðu þeir að fljúga heim daginn eftir. Mjög athyglisvert var að fýlgjast með á siglingunni út flóann þar sem útsýnið var frábært. En það sem ég sá af Kóreu fannst mér það vera einkar fallegt land. Sigldum við nú út á Austur-Kínahaf og var stefnan tekin á sundið milli Kína og Taiwan. Gekk allt vel fýrir sig hjá vélaliðinu mínu og virtist litlar áhyggjur þurfa að hafa af því. Við fórum strax að vinna við að aftengja og losa Baadervélar sem voru á vinnsludekkinu. Voru það vélar sem við kæmum ekki til með að nota í okkar vinnslulínu. Var hugmyndin að selja þær og koma þeim í land í Singapore. Fljótlega breytti Sigurður stefnunni og sigldi fýrir utan Taiwan. Fórum við þar af Ieið- andi framhjá Okinava. Astæðan fýrir því var sú að mikil ólga var á milli Kína og Taiwan og voru fallbyssubátar á ferð og flugi í sundinu á milli landanna. Myndi þessi krókur lengja leiðina eitthvað. Var Sigurður að velta fýrir sér að gera ráðstafanir um borð vegna hugsanlegra árása sjóræningja sem að hans sögn var mikið um á þessum slóðum. Ur því varð þó aldrei. Algengt var að skipstjórar létu raða sjóslöngum á rekkverk skipa sinna og tengdu þær við sjó- dælur. Var svo sjórinn látinn dynja á óæski- legum gestum ef þeir réðust til uppgöngu í skipin. Á þessari siglingu fórum við öðru hvoru fram hjá heljarstórum flotum af fiskiskipum. Þeir fiska sem róa o Eldsneyti á skip og báta O Þurrkupappír og skammtarar O Rafgeymar og hleðslutæki O lce clean háþrýstiþvottakerfi O Smurolíur fyrir allar vélar O Vinnugallar, vinnuskór og vettlingar O Hreinsiefni og sápur O Rekstrarvörur f/ útgerð og fiskvinnslu [ Grænt númer y...* □335100 Pantanir í fax: 5151110 Pantanasími: 5151100 □IÍ5 léftir þér lífíð Þjónusta við sjávarútveginn 52 Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.