Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Blaðsíða 29
orsakaþætti slysa í því skyni einu að koma í
veg fýrir slys til sjós af sömu eða sambærileg-
um orsökum. Tilgangurinn er með öðrum
orðum ekki sá að skipta sök eða ábyrgð af slysi.
Tilgangurinn er að auðvelda rannsóknar-
nefnd sjóslysa störfin og eyða þeirri tor-
tryggni sem verið hefur í garð nefndarinnar
frá sjómönnum og útgerðarmönnum. Auð-
vitað setur þetta ákvæði jafnframt ábyrgðina á
opinberri rannsókn þegar þess er þörf yfir á
rétta aðila í dómsmálakerfinu.“
-Má búast við að þetta frumvarp eigi greið-
an framgang á Alþingi?
„Viðbrögðin við þessu frumvarpi eru mjög
góð og ég geri mér vonir um að það verði af-
greitt sem lög á þessu þingi. Viðbrögð nefnd-
armanna hafa verið mjög góð og það er þrýst-
ingur í þjóðfélaginu á að málið gangi hratt
fram. Mönnum hefúr fúndist sú tortryggni
sem verið hefúr í garð nefndarinnar torvelda
störf hennar afþví að þau hafa fram að þessu
verið hluti af lögreglurannsókn. Um leið er á-
kveðið að birta skýrslur nefndarinnar jafnóð-
um og eru sérstök ákvæði þar um í 14. grein
frumvarpsins. Það má geta þess að gerðar
verða ráðstafanir til að unnt verði að birta
skýrslurnar einnig á netinu. Það er óhjá-
kvæmilegt að ráðuneytið fa fjármuni til að sjá
um að gefa skýrslurnar út jafnóðum en á það
hefur skort til þessa. Með þessu frumvarpi er
komið til móts við óskir sjómanna og lögin
eiga að auðvelda sjómönnum og útgerðar-
mönnum að grafast fyrir um orsakir slysa og
fækka óhöppum í framtíðinni.
Frestun reglugerð um GMDSS
-Svo við víkjum að öðru. Hvers vegna var
frestað gildistöku reglugerðar um GMDSS
fjarskiptabúnað sem átti að taka gildi 1. febr-
úar 1999?
„Það var fýrirsjáanlegt að það væri ógern-
ingur að standa við þá dagsetningu. Meðal út-
gerðarmanna var sú skoðun uppi að ný tækni
væri að koma til sögunnar og því væri skyn-
samlegt að doka aðeins við. Gildistöku reglu-
gerðarinnar var hins vegar ekki frestað í heild.
Aðeins nokkrum ákvæðum um fiskiskip
stærri en 24 metrar var frestað. Það verður
settur á fót samstarfshópur milli ráðuneytis-
ins, Siglingastofnunar og útgerðarmanna til
þess að fara yfir reglurnar og glöggva sig á
því hvaða kröfúr eru gerðar um fjarskipta-
búnað og annan búnað um borð í íslenskum
fiskiskipum. Ég er þeirrar skoðunar að það sé
sjálfgefið og sjálfsagt að við gemm sömu lág-
markskröfur til íslenskra fiskiskipa og gerðar
eru í Evrópusambandinu enda erum við
RAFVER
SKEIFUNNI 3E-F
SÍMI581 2333 FAX 568 0215
Hefðbundin
fiskikeraframleiðsla
Borgarplasts.
I Nýjung - Ofurker
I Borgarplast hefur sett á markað nýja tegund
I endurvinnanlegra kera, ofurker (heavy duty).
|||p* Þessi ker, sem þegar eru til i gerðunum 460E og
y 660E, hafa styrk og burðargetu langt umfram
hefðbundin plastker og henta því sérstaklega vel þar
sem miklar kröfur eru gerðar til burðargetu, en
einangrun skiptir minna máli, t.d. í saltfiskvinnslu og
forverkun á rækju. Ofurkerin hafa sömu
utanmál og hefðbundin ker, sömu gerðar,
frá Borgarplasti og staflast með þeim.
Framleiðslu vörur fyrirtækisins
eru þekktar fyrir góða hönn-
un, endingu og gæði.
Endurvinnanleg
plastvörubretti,
viðurkennd til nota i
matvælaiðnaði og
falla að alþjóðlegum
flutningastöðlum.
BCRGARPLAST
ngarplast hf. Sefgarðar 1-3 170 Seltjarnarnes Simi: 561 2211 Simbréf: 561 4185
Vottaö gæðakerfi
sidan 1993
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
29