Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Page 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Page 10
Einhvernveginn get ég ekki séð fyrir mér að þetta komist til framkvæmda hér eins og látið er út af sjómannaaf- slættinum. En meðan ástandið er eins og það er nú þurfum við ekká að búast við f arskipum undir islenskan f ána og stöðugildi sjómanna verða óbreytt eða f ækkar eins og þróunin hefur verið. ur skil í skýrslu stjórnar og mun ég því ekki fara ítarlega í hana. Gámaskip í rútusigling- um til íslands eru undanþegin og skil ég það svo að þar verði óbreytt ástand. Höfundar benda meðal annars á aðgerð- ir Dana þegar þeir komu með sína alþjóðaskráningu. Þar borga útgerðirnar áhöfnunum nettó laun og segja má að skatturinn sé stuðningur til út- gerðarinnar, auk þess borga þeir lægri tryggingagjöld af á- höfnum sínum en þeir sem eru í gömlu skráningunni, þeir eru undanþegnir tekjuskatti en borga í staðin tonnagjald sem er talsvert lægra, skráningar- gjöld og stimpilgjöld eru líka lág en Danir gerðu fleira. Kaup á hlut í skipum var vænlegur fjárfestinga kostur sem gaf góðan skattaafslátt, talað var um að stór hluti þeirra sem áttu í þessum “partrederíum” svo kölluðum væru tannlæknar og lögfræðingar. Hans Cristensen vice. dir. í danska siglingaráðuneytinu, sagði mér að þessi stuðningur hefði numið 500,000 000 dkr. og að mikil andstaða hefði ver- ið við þessum styrkjum en í dag sættir fólk sig við þetta enda er skipaútgerð orðin þriðja stærsta atvinnugreinin á eftir landbúnaði og iðnaði. Einhvernveginn get ég ekki séð fyrir mér að þetta komist til framkvæmda hér eins og látið er út af sjómannaafslætt- inum. En meðan ástandið er eins og það er nú þurfum við ekki að búast við farskipum undir íslenskan fána og stöðu- gildi sjómanna verða óbreytt eða fækka eins og þróunnin hefur verið. Niðurfelling skráningargjalda og lækkun stipilgjalda tel ég að eigi að koma til allra kaup- skipa eins og segir í breyting- artillögu FFSÍ (sjá árskýrslu en þeim breytingartillögum sem þar eru er ég sammála). Eins og nú horfir virðist ekk- ert gerast í þessum málum og er það ekki nýtt. Erlend leiguskip með ódýru vinnuafli flytja farm eftir farm af fiskimjöli, lýsi, vikri og frystu sjávarfangi frá landinu án þess að íslenskir farmenn komi þar nærri. Kanski eigum við ekki fólk til að manna þessi skip, endurnýjun farmanna er lítil og meðalaldur hækkar. En það eru þessi skip sem frumvarpið nær til. Sú spurning hefur orðið æ áleitnari í huga mér hvort við höfum orðið einhverju að tapa þó frumvarpið fari í gegn, er ekki allt að vinna og engu að tapa eða erum við búnir að missa af lestinni. ■ RAFVER SKEIFUNNI3E-F SÍMI 581 2333 • FAX 568 0215 UltrafílteT UR SÍUR • SJÁLFVIRKUR AFTÖPPUNARBÚNAÐUR Lagafrumvarp um happdrætti DAS: Fái atð gjeiða út yngym i-imm pingmenn sjait- stæðisflokksins með Guð- mund Hallvarðsson í broddi fylkingar hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um happdrætti Dval- arheimilis aldraðra sjó- manna. Breytingin yrði til þess að happdrættinu verði heimilt að borga vinninga út með peningum í stað varn- ings eins og nú er. I greinargerð með frum- varpinu segir meðal annars að samkeppni happdrætta hafi aukist gríðarlega, eink- um í kjölfar aukins fram- boðs happdrætta þar sem vinningar eru greiddir út með peningum. Samkeppn- in hafi bitnað mjög á happ- drættum SÍBS og DAS sem einungis hafi haft heimild til að greiða andvirði vinninga út í vörum. I nágrannalönd- um heyri slík vöruhapp- drætti sögunni til og því hafi íslenskum vöruhappdrætt- um verið ómögulegt að tengjast erlendum happ- drættum. Enginn áhugi sé lengur fyrir því að fá and- virði vinnings greitt í búpen- ingi og búvélum og því hafi happdrætti DAS átt undir högg að sækja. Þingmennirnir fimm hafa einnig lagt fram hliðstætt frumvarp um breytingu á happdrætti SÍBS. ■ 10 SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.