Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Page 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Page 12
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi í Vestmannaeyjum: Glæsiíbúð við. Grandaveg N- Skipstjóra- og stýrimanna- félagið Verð- andi í Vest- mannaeyjum hefur hafið út- leigu á íbúð sem félagið festi kaup á. í- búðin sem er öll hin glæsileg- asta er á besta stað í Reykja- vík, að Granda- vegi 1 í Vesturbænum. Með öllum húsgögnum og heim- ilstækjum lætur nærri að íbúð- in kosti um ellefu milljónir króna. Það voru félagarnir Magnús Guðmundsson, Ebeneser Guðmundsson og Halldór Guðbjörnsson sem sáu um að koma öllu fyrir og standsetja í- búðina svo hún væri tiæbúin til útleigu. Þeir nutu aðstoðar eig- inkonu Ebenesar, Láru Jónsdóttur, og dóttur Magnúsar, Önnu Kristínu. Þeir félagarnir segjast sann- færðir um að talsverður áhugi verði fyrir íbúðinni meðal fé- lagsmanna. Fyrir á Verðandi tvær íbúðir á Spáni, við bæinn Torrevieja. Talsvert hefur verið um að þær íbúðir hafi verið í leigu, en ekki nægjanlega af félagsmönnum í Verðandi. Ætlunin er að selja þessar íbúðir. Þetta er ekki allt. Verðandi á sumarhús í Gríms- nesi þar sem miklar breytingar hafa ver- ið gerðar á síðustu tveimur árum. Það er búið að leggja hitaveitu, skipta um innbú, gera verönd, setja heit- an pott og fleira og fleira. Áður en ráðist var í þess- ar framkvæmdir var sumarhúsið aðallega leigt út á sumrin en eftir breytingarnar fellur varla úr helgi allt árið og hefur þessi aukna aðsókn farið langt um- fram væntingar. Þegar verið var að undirbúa kaup á tækjum og húsgögnum í nýju íbúðina hafði Ebeneser samband við fjölda verslana og óskaði tilboða. Það gladdi þá félaga mikið að Reynisstað- ur í Vest- mannaeyjum var með hagst- sæðasta tilboðið í húsgögnin og því voru þau keypt í Vest- mannaeyjum. < ( ( - 12 Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.