Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Side 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Side 31
ggygpiy Markmiöin eru einungis þau að auka öryggi og fækka sjóslysum. íslendingar höfum ekki verið reiðubúnir til þess að ganga jafn langt í þessum efn- um og nágrannar okkar. Það má segja að sé ein aðalástæðan fyrir því að íslenskum kaupskipum heflir verið flaggað út. Einnig voru mönnunarreglur fyrir ís- lensk kaupskip ekki í takt við tímann fyrir nokkrum árum. Forsendan fyrir því að skip séu skráð hér aftur er einhvers konar alþjóðleg skipaskrá líkt og Danir eða Norðmenn stofnuðu til fyrir tíu árum sem gerði ráð fyrir verulegum skattaíviln- unum til islenskra sjómanna sem störf- uðu á skipunum. Hættan yrði eftir sem áður sú að skipin yrðu mönnuð údending- um meira eða minna. Um slík markmið hefúr ekki náðst samkomulag og eins og málin standa núna verður þetta áfram til athugunar. Menn verða að fikra sig áfram með það markmið að finna lausn sem tryggir að íslendingar geti mannað sín skip sjálfir í það minnsta á öllum helstu siglingaleiðum til og frá landinu. Mín skoðun er sú að það sé mjög þýðingarmik- ið að íslensk þekking haldist í þessari at- vinnugrein og ungir menn sjái sér hag í því að læra til skipstjórnar." Ánægja með nýju Sæbjörgina -Við ræddum í upphafi um þær breyt- ingar sem gerðar verða á rannsóknum sjóslysa. Hvað hefúr verið gert frekar í þá átt að reyna að fekka slysum um borð í skipum? „Sjómannsstarfið er mjög hættulegt og það er bráðnauðsynlegt að gera allt sem við getum til þess að draga úr slysahættu, minna menn á að gæta sín og koma fræðslu til sjómannastéttar- innar. Þar er Slysavarnarskóli sjómanna nauð- synlegur þáttur. Þegar ég varð samgönguráð- herra lá það ljóst fyrir að innan u'ðar yrði að gera annað tveggja, endurbyggja gamla Þór eða kaupa nýtt skip fyrir Slysavarnarskóla sjó- manna. Að vísu vildu sumir að þessi kennsla færi fram á landi og kennslugögn flutt í gám- um milli landshluta. Það þótti mér vondur kostur og vildi ekki sætta mig við hann. Það lá líka fyrir að viðgerð á Þór yrði ógnarlega dýr og ekki séð fyrir endann á þeirri tæringu sem var í skipinu. Sú hugmynd kom upp að samnýta ferjuna Fagranes og starfsemi Slysavarnar- skólans en hún gekk ekki upp. Um leið og á- kveðið var að ráðast í Hvalfjarðargöngin var á- kveðið að kanna hvort Akraborgin hentaði Slysavarnarfélaginu. Þegar félagið komst að þeirri niðurstöðu að þetta skip hentaði vel og yrði ekki of dýrt í rekstri fannst mér einsýnt að Slysavarnarfélagið fengi skipið fyrir Slysavarn- arskólann. Eg verð ekki var við annað en mönn- um um land allt finnist þetta góð lausn og mikil lultka er með skipið. Nú á að vera vanda- laust að eyða biðlistum eftir inngöngu í skól- ann. Einnig hefúr verið lögfest að sjómenn skuli fá endurmenntun á nokkurra ára fresti.“ -Það hafa ýmis lög verið gefin út í Evrópu- löndum og tilskipanir um öryggi sjómanna. Eru þær sjálfkrafa teknar upp hér á landi? „Þær lágmarkskröfúr sem gerðar eru innan Evrópusambandsins eru einnig gerðar hér. Við höfúm á hinn bóginn ekki viljað fallast á að við megum ekki hafa okkar sérkröfur sem ganga lengra. Dæmi um það er tilkynningarskyldan. Fiskveiðarnar eru utan EES-samningsins og við teljum að við höfúm fúlla heimild til að á- kveða sjálfir hvernig öryggsmálum sjómanna skuli skipað með því að við gerum ekki minni kröfúr en Evrópusambandið. Þessi sérstaða okkar er ljós og ég þekki ekki dæmi þess að við göngum skemur." -Vitavarsla er orðin sjálfvirk að mestu. Hafa kornið upp nokkur vandkvæði varðandi þær breytingar að hætta að manna vitana? „Þessar breytingar hafa gengið á- gætlega og gefist vel. Hins vegar fannst mér álitamál hvort ætti að leggja niður vitavarðarstöðuna á Horni. Hún var dýr og aðhald var mikið í ríkisfjármálum en við í samönguráðuneytinu vorum reiðubú- in að halda þeirri stöðu úti ef Veður- stofan tæki þátt í kostnaðinum sem ekki varð. Það hafá annað slagið komið upp raddir að gott sé að hafa vitavörð á Horni ef hafís kæmi að landinu en hins vegar engin nauðsyn á vitaverði þar í venjulegu árferði. Húsunum verður samt haldið við. Því má svo bæta við að Siglingastofnun setti upp sjálfvirka veðurathugunarstöð á Hornbjargsvita, Straumnesvita og öldudufl út af Aðalvík Mér er sagt að sjómenn séu mjög ánægðir með þessa þjónustu og meti hana mikils.“ Nýjar vöruhafnir -Þú ert einnig ráðherra hafnamála. Eru óskir um úrbætur í hafnarmál- um ekki alltaf meiri en hægt er að verðavið? „Þegar ég varð samgönguráðherra voru að vísu gerð drög að eins konar hafnaráætlun en hún var lögð upp sem draumaáætlun sveitarfélaganna víðs vegar um landið og aldrei sam- þykltt af Alþingi. Hún hafði því ekki við rök að styðjast og olli oft leiðindum því sveitarfélögin höfðu tilhneigingu til að telja ríkið skuldbundið til að standa við það sem stæði í drögunum. Ég tók hins vegar þann háttinn upp að láta gera hafnaráætlun sem væri innan þess fjárlagara- mma sem ríkið vildi marka fram í tímann. Þetta hefúr breytt mjög vinnubrögðunum og gerir þessi mál miklu léttari viðfangs en áður þó svo að þarfirnar séu gífúrlega miklar og að sumu leyti vaxandi. Skipin eru að stækka og djúpristan meiri. Nú er óhjákvæmilegt að byggja nýja vöruhöfn bæði á Húsavík og Höfit í Hornarfirði. Anægjulegt er að við sjáum fram á að geta dýpkað innsiglinguna til Grindavíkur á næstu árum og byggt þar nýja varnargarða. Höfnin verður öruggari en áður sem er afar mikilvægt því Grindavíkurhöfn hefúr verið háskalegasta höfn landsins og því stórkostlegt að geta gert þar úrbætur sem duga. Svo ef horft er lengra fram í tímann sjá- um við ffamá að Þorlákshöfn verði gerð að vöm- höfn,“ sagði Halldór Blöndal. ■ Sjómannablaðið Víkingur 31

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.