Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2000, Blaðsíða 8
„Án þess að ég vilji halla á neinn þá held ég að óhætt sé að fullyrða að Vísir sé virkasta félagið innan Farmanna- og fiskimannasamþandsins. Fé-
lagsmenn eru milli 250 og 260 og fjöldinn verið nokkuð stöðugur og mitt starf er að vinna að hagsmunum þeirra sem þest ég má. Baráttan um
brauðið harðnar frekar en hitt og við reynum alla vega að halda í horfinu," sagði Jóhannes sem hér situr þing Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands ásamt félaga sínum Erni Einarssyni.
Nýr formaður Vísis, Félags skipstjórnarmanna á Suðurnesjum
Baráttan harðnar
Á aðalfundi Vísis þann 30.
desember síðastliðinn var Jó-
hannes Jóhannesson kjörinn
formaður félagsins í stað Grét-
ars Mar Jónssonar sem þá
hafði verið kjörinn forseti Far-
manna- og fiskimannasam-
bands íslands. Jóhannes er öll-
um hnútum kunnugur í Vísi,
enda búinn að vera fram-
kvæmdastjóri félagsins frá
1996 og gegndi embætti gjald-
kera í ellefu ár.
í stuttu spjalli við Víkinginn
sagðist Jóhannes hafa verið
sjómaður um langt árabil, sem
háseti, stýrimaður og skipstjóri.
En er Vísir öflugt félag?
„Án þess að ég vilji halla á
neinn þá held ég að óhætt sé
að fullyrða að Vísir sé virkasta
félagið innan Farmanna- og
fiskimannasambandsins. Fé-
lagsmenn eru milli 250 og 260
og fjöldinn verið nokkuð stöð-
ugur og mitt starf er að vinna
að hagsmunum þeirra sem
best ég má. Baráttan um
brauðið harðnar frekar en hitt
og við reynum alla vega að
halda í horfinu," sagði Jóhann-
es.
Hann var spurður um ástæð-
ur þess að Vísir tekur ekki þátt
þeim viðræðum sem eiga sér
stað um sameiningu félaga
skipstjórnarmanna.
„Við erum þeirrar skoðunar
að sameina beri öll félögin og
tókum þátt í viðræðum um
það. Hins vegar sögðum við
okkur frá þeim viðræðum í
byrjun janúar og aðalástæða
þess er sú að þarna eru ekki öll
félögin með eins og við vildum.
Það er hins vegar hið besta
mál ef einhver félög ná að
sameinast fljótlega en við vilj-
um sem sagt sameina alla eða
ekki. Það má vel vera að það
takist að ná allsherjarsamein-
ingu þótt síðar verði,“ sagði
Jóhannes Jóhannesson for-
maðurVísis. ■
8
Sjómannablaðið Víkingur