Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2000, Blaðsíða 18
Guðmundur Thorlacius lenti í Halaveðrinu mikla árið 1925 þegar hann
var háseti á togaranum Agli Skallagrímssyni. Hann rifjar upp þann at-
burð og fleira frá langri sjómannsævi í viðtali við Sæmund Guðvinsson
Hugsuðum aðeins
um að þjarga skipinu
Þeir eru varla margir enn á lífi sem lentu í
Halaveðrinu mikla fyrir 75 árum þar sem
tveir togarar fórust með 68 mönnum og
margt skipið hætt komið. Guðmundur
Thorlacius sem lifir í hárri eili í Reykjavík var
háseti á togaranum Agli Skallagrímssyni sem
lenti í veðrinu og lengi vel tvísýnt um afdrif
skips og áhafnar. Guðmundur er furðulega
ern andlega og líkamlega og ekki að sjá að þar
fari 95 ára gamall maður sem stundaði sjó-
mennsku í 70 ár. Hann man vel ofviðrið á
HaJanum sem brast á síðari hluta Iaugardags
7. febrúar árið 1925 og rifjar upp þennan at-
burð í viðtali við Sjómannablaðið Víking.
„Þetta er versta veður sem ég hef lent í á
mínum sjómannsferli. Við vorum búnir að
vera hálfan mánuð úti þegar veðrið skall á
með blindhríð og stjórsjó. Við höfðum bren-
nt miklu af kolum á þessum tveimur vikum
og skipið létt. Annars hefðum við farið nið-
ur,“ segir Guðmundur.
Skipið var keyrt upp l vindinn en síðari
hluta nætur breyttist sjólagið. Stórsjór skellti
skipinu á hliðina og stjórnpallurinn fór á kaf
bakborðsmegin. Þá kastaðist allt lauslegt út í
hliðina, kol, salt og fiskur. Eldar drápust und-
ir eimkatlinum og báða björgunarbáta tók
fyrir borð ásamt fleiru.
RAK STJÓRNLAUST Á HLhÐINNI
„Við fengum mikinn sjó niður í skipið,
bæði gegnum lúgur á keisnum og ventla og
þess vegna drapst undir katlinum. Skipið rak
því stjórnlaust á hliðinni í þessu ofsaveðri.
Við mokuðum saltinu yfir í kulborða og svo
urðum við að fara að ausa því það stoppuðust
allar Iensingar og enginn dampur til að hreyfa
vél, hvorki ljósavél eða annað. Þegar þetta var brotsjór og lagði skipið aftur á sömu hlið. Þá moka salti og ausa skipið,“ segir Guðmundur
farið að bera nokkurn árangur kom annar var ekki um annað að ræða en byrja aftur að ennfremur.
Guðmundur Thorlacius.
Hann hefur reynt mikið á langri ævi.
18
Sjómannablaðið Víkingur