Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2000, Page 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2000, Page 50
Ný stjórn Farmanna- og fiski- mannasambands íslands Á þingi Farmanna- og fiskimannasambands íslands í nóvember 1999 voru eftirtaldir kjörnir í stjórn sambandsins, talið frá vinstri: Örn Einarsson, Harald Holsvik, Eiríkur Jónsson, Grétar Mar Jónsson forseti, Halldór Guðbjörnsson, Stígur Sturluson, Guðjón Petersen varaforseti, Árni Bjarnason, Guðjón Ármann Einarsson, Ingvi R. Einarsson, Högni Skaftason, Níels Olgeirsson og Benedikt Valsson framkvæmdastjóri. Á myndina vantar Jónas Ragnarsson, Finnboga Aðalsteinsson og Ólaf Örn Jónsson. í síðasta blaði var kynntur leikur sem Víkingur er með, en það er val lesen- da blaðsins á mesta aflamanni aldarin- nar. Undirtektir voru nokkrar en alls ekki eins og við væntum. Eftir að hafa skoðað málið að nýju hafa aðs- tandendur blaðsins ákveðið að breyta leiknum lítið eitt. í stað þess að velja einn aflaskipstjóra eru lesendur blaðsins beðnir að vera með í leiknum og tilnefna einn eða fleiri í eftirtalda flokka: Þeir sem hafa róið frá Ægisíðunni í Reykjavík verða sennilega ekki valdir aflamenn aldarinnar, en eigi að síður hafa þeir dregið drjúgt úr sjó. aJMesta aflaskipstjóra hefðbundinna báta. b)Mesta aflaskipstjóra nótabáta. c)Mesta aflaskip- stjóra togara. Það skal ítrekað að þetta er aðeins leikur og við skorum á sjó- menn að taka þátt í þessum leik með okkur. Eftir útkomu síðasta blaðs fengum við nokkrar ábendin- gar um aflamann aldarinnar, en við munum ekki gefa upp hverjir hafa verið tilnefndir. Að auki mun Sjómannablaðið Víkingur leita til hóps manna og óska eftir tilnefningum. 50 Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.