Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2000, Page 51

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2000, Page 51
Halldór Halldórsson skipstjóri Kvótaraunir Þekkingarleysi fiskifræðinga og ráðgjafa ráðamanna á hegðun fiska gagnvart veiðarfærum og áhrif veiðarfæra á stofnstærð er aðalvandamálið við stjórn fiskveiða. Markmið kvótalanna og grunnur þeirra byg- gir á verndun og viðhaldi fiskistofnanna og er því deginum ljósara að lögin þjóna ekki lengur þeim tilgangi, sem ætlast var til í upphafi. Gífurlegt brottkast afla og margra áratuga reynsla fiskimanna og aldarlöng skráning afla á íslandsmiðum og skipting hans á milli veið- arfæra eru borin íýrir borð. Þar hefur okkur íslendingum tekist afar slysalega til frá árinu 1984 fram til dagsins í dag. Á þessum árum hafa stofnar botnfisks minnkað gifurlega og eru þeir komnir í sögulegt lágmark. Veiðarfærin skipta verulegu máli. Þegar veitt er með togveiðarfærum er ungviðinu mikil hætta búin, sérstaklega ef möskvastærð- in er mjög smá eins og er í rækju- og humar- trollum. Með notkun þessara veiðarfæra á grunnsævi innan við 80 faðma dýpi er mikil hætta á að drepið sé mikið magn af seiðum og smáfiski. íslendingar byrjuðu innfjarðarrækjuveiðar upp úr 1955 og humarveiðar upp úr 1958 og almennt 1960. Þessar veiðar eiga stóran þátt í niðursveiflu í ýsuveiðum upp úr 1966 til 1967, en þá hrapaði veiðin á ýsu úr rúmum 100 þúsund tonnum í 50 til 60 þúsund tonn og var á því róli þar til úthafsveiðar á rækju jukust gífurlega 1992 til 1994. Árip 1998 var svo komið að ýsuveiðin var 31 þúsund tonn og náðist kvótinn ekki. Ufsakvótinn náðist ekki heldur og veiddust aðeins 27 þúsund tonn, en við vorum á árum áður að veiða 95 þúsund og niður í 65 þúsund tonn til ársins 1995, en þá dalar veiðin svona. Ættu menn, sem ráða og stjórna veiðunum að líta til þess hve afli á þessum tegundum hefur minnkað gífúrlega síðan 1984 og hafa veiðar á flestum botnfisktegundum dregist saman frá þeim tíma. Þessi „góða“ stjórnun er orðin heims- fræg enda halda útgerðarmenn varla vatni yfir hagkvæmni veiðanna. Ef ég man rétt, þá hefur frá því að seiða- rannsóknir hófust upp úr 1970 tvisvar komið fram stór þorskárgangur, sem hélt uppi þorskaflanum í fjögur til fimm ár hvor þeirra. Þetta kom í ljós með kvarnatöku úr afla vertíðarbáta. Þessir tveir sterku árgangar komu á óvart því þeir mældust báðir tveir litlir árgangar í seiðarannsóknum og kom þetta vísindamönnum í opna skjöldu. Frá árinu 1984 hefur olíueyðsla fiskiflotans rúmlega tvöfaldast við veiðarnar og skuldir útgerðarinnar fjórfaldast, svo eitthvað alvar- legt er í gangi í útgerðinni sem stemmir ekki við hina miklu hagkvæmni sem útvegsmenn og löggjafinn telja að kerfið skili. Ekki er seinna vænna að höfða mál dl að hnekkja kvótalögunum og þeim mannréttindabrot- um sem framin eru í skjóli þeirra. Verndun og viðhald fiskistofna er búið að vera algjört grín síðan kvótalögin tóku gildi árið 1984. Þingmenn gáfu nokkrum mönnum í þjóðfélaginu 300 milljarða króna með kvóta- framsalinu, sí svona. Til hvers? Til að koma á hlutabréfamarkaði á íslandi. Á dögunum bauð forseti vor til landsins forstjóra Kaup- hallarinnar í New York til að sýna hvað við værum klárir hér á Fróni. Það hefúr líklega ekki vafist fyrir forsetanum að útskýra hvaða töfrabrögðum var beitt til þess að koma hér á verðbréfaviðskiptum á mettíma! Mesti þensluvaldur í hagkerfi okkar er hin gríðarlega skuldasöfnun sjávarútvegsins á síðustu þremur árum, en skuldirnar jukust um 50 milljarða króna og flæða þessir fjár- munir inn í þjóðfélagið og ekkert er á bak við þá nema syndandi fiskurinn í sjónum og flótti frá landsbyggðinni á suðversturhornið, sem sprengir upp fasteignaverð og veldur þenslunni. Þennan snjóbolta bjó ríkisstjórnin til og stækkar hann glatt í skjóli hennar. ■ Samviskan er sett í poka saman bara lögum hent. Ota sínum eigin tota okkur hinum svo um kennt. SjÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR 51

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.