Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Blaðsíða 45
Afi Jónasar dó og lét eftir sig 100 milljón krónur, sem Jónas
fékk næstum óskipt. í vikunni þar á eftir samþykkti Magga loks
að giftast honum. Eftir þriggja mánaða hjónabandssælu tók
Jónas eftir því að nýja konan hans tók minna og minna eftir
honum. Þau fáu skipti sem þau fóru saman í rúmið, þá var
Magga alveg áhugalaus, eða i versta falli kallaði upp nöfn ann-
arra karla. í hvert sinn sem þau fóru út saman, þá hunsaði
Magga hann algerlega og daðraði linnulaust við aðra karlmenn.
Að lokum var Jónas búinn að fá nóg og ákvað að taka á málinu.
„Magga!” sagði hann ákveðinn. „Ég vil fá að vita af hverju í
ósköpunum þú giftist mér. Var það bara vegna þess að afi minn
lét mér eftir þessa peninga?”
„Láttu ekki eins og asni!” sagði Magga. „Það hefði ekki skipt
mig neinu máli hver lét þig hafa peningana.
Lengdur Mercedes Benz limmi stoppaði á rauðu Ijósi og við
hliðina á honum stoppaði pínulítill Mini. Guðmundur, sem sat í
limmanum leit með fyrirlitnigasvip á Jónas i litla bílnum og
byrjaði að gorta sig af því hvað bíllinn hans væri flottur.
„Þetta er besti limmi sem hægt er að fá fyrir peninga,” sagði
hann. „Hann er með ABS bremsur, spólvörn, líknarbelgi fyrir
alla farþegana, innbyggt tölvukerfi með Internettengingu, ljós-
næma glugga, vel fylltan bar, sjónvarp með gerfihnattadiski í
þakinu, ...”
Þegar hér var komið sögu tók Jónas í litla bílnum framí fyrir
honum. „En ertu með DVD spilara?”
Nú skiptu ljósin yfir í grænt og Guðmundur varð dálítið
svektur yfir því að hafa ekki DVD spilara í bílnum, svo hann
lagði leið sína í næstu verslun sem seldi DVD spilara fyrir bíla
°g lét setja einn slíkan í limmann.
Nokkrir dagar liðu og þá sá Guðmundur hvar litli bíllinn hans
Jónasar stóð við vegarbrúnina. Allir gluggar voru huldir móðu
°g strókur af gufu stóð út um einn gluggann sem var aðeins op-
inn. Þegar Guðmundur sá þetta fór hann út úr stóra og flolta
bílnum sínum með allar græjurnar og bankaði á gluggann á litla
bílnum hans Jónasar. Eftir smá tíma rakjónas rennandi blautan
hausinn út um dyrnar.
„Ég er búinn að setja DVD spilara í bilinn minn!” sagði Guð-
mundur hreykinn.
Jónas varð önugur „Og þurftirðu endilega að draga mig úl úr
sturtunni til að segja mér þetta?”
Tveir snyrtifega klæddir trúboðar frá sértrúarsöfnuði bönkuðu
dag einn uppá hjá Möggu og Jónasi og Magga fór til dyra. Þeir
byrjuðu að bjóða henni góðan daginn á brotinni íslensku, en
hún tók fram í fyrir þeim, sagði þeim að hún „vildi ekkert and-
skotans trúboð hér!” og skellti hurðinni á þá. Magga varð ekki
htið hissa þegar hurðin spratt upp aftur og dyrnar stóðu opnar.
Hún reyndi aftur, lagðist verulega þungt á hurðina og reyndi að
l°ka, en með sama árangri, hurðin skall inn aftur.
Magga var alveg viss um að annar þessara ágengu trúboða
væri að reyna að halda dyrunum opnum með því að setja fót á
milli stafs og hurðar, svo nú tók hún í hurðina, opnaði hana al-
veg á gátt og ællaði að skella henni af fullum þunga á fótinn á
manninum.
Þá sagði annar trúboðinn „Ék hild at tú skulir fyrst reyna
færa kottinn, já?
Jónas er búinn að vera í fangelsi í sjö ár og nú var verið að
hleypa honuin út. Magga og Siggi litli kornu austur fyrir fjall til
að taka á móti honum. Þegar Jónas settist inn í bílinn þá sagði
hann „R.E” Magga svaraði strax „B.E”.
Þau lögðu af stað frá Hrauninu og eftir smá tíma sagði Jónas
„R.E?”, en Magga sagði „B.E!”.
Á miðri Hellisheiðinni sagði Jónas aftur „R.F.” með miklunr
bænatón, en Magga var fljót að segja „B.E” og það mjög ákveðið
í þetta sinn.
Nú gat Siggi litli í aftursætinu ekki lengur setið á sér og
spurði „Mamma, pabbi, hvað gengur á hérna?”
Jónas svaraði „Mamma þín vill endilega borða fyrst.”
v'0"^
! JZc'-
<?i/r v0
5TAHADYNE
DEN5Q
AatJiíJJJ
umscfvico
• VÉLAVIÐGERÐIR
• RENNISMÍÐI
• PLÖTUSMÍÐI
• TÚRBÍNUVIÐGERÐIR
' DÍSILSTILLINGAR
• SOLU- OG MARKAÐSDEILD
« VARAHLUTAMÓNUSTA
• GÁMAVIÐGERÐIR OG SMIÐIA
Kraftmíkíl
og lipur viðgerðarþjónusta
FRAMTAK
í VÉLA- OG SKIPAÞJÓNUSTA ehf
Dranfihraunl l-lb Haínarfjðrður
Slml: 545 2S56 • Fax: S45 2956
N • t f. n f: lnfo@framtak.ii
Htlmailða: http://www.framtak.li
FRAMTAK
BLOSSI ehf
Sjómannablaðið Víkingur - 45