Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Blaðsíða 50
ins. Skipið átti að fá nafnskírn við hátíðlega athöfn i New York
þann 10. april en þá var skipið enn bundið við bryggju í Nor-
egi. Dagsektirnar sem á Fosen hvíla eru litlar 8,8 milljónir á
dag en langt verður í að þetta mál verði til lykta leitt þrátt fyrir
að skipið hafi siglt.
STCW - engin miskun
Alþjóðasamþykktin STCW frá 1995 fer nú brátt að taka til út-
gerða um heim allan. Þessi samþykkt stendur fyrir Menntun,
skírteini, þjálfun og varðstaðu kaupskipasjómanna og erum við
íslendingar aðilar að þessari samþykkt. Hún gekk í gildi 1.
febrúar s.l. en ákveðið var að gefa skipum 6 mánaða aðlögun til
viðbótar. Þessir 6 mánuðir virðast líða rnjög hratt en þau skip
þar sem áhafnir uppfylla ekki þau skilyrði sem þessi samþykkt
setur á þær hafa fengið aðvaranir frá hafnarríkiseftirlitsmönnum
og þegar hafa 622 skip fengið slíkar aðvaranir. Ef einhverir
skipverjar hafa ekki tilskilda menntun, skírteini eða þjálfun þá
eiga þeir ekki að fá að starfa um borð í skipum fyrr en þessurn
liðum hefur verið kippt í liðinn og þegar 1. ágúst lítur dagsins
ljós munu skip ekki lengur fá aðvörun heldur verða þau sjálf-
krafa kyrrsett. Það á einhverjum eftir að bregða í brún þegar að
þessu kemur en sjómenn á kaupskipum hafa lært það að ekki
verður hægt að fela sig gagnvart þeim kröfum sem gerðar eru til
þeirra þvi skipin eru einfaldlega kyrrsett og þar eru engar und-
anþágur gefnar.
á landi en þetta fyrirtæki hefur meðal annars verið í skipaút-
gerð. Fyrirtækið hefur átt þrjú sementsflutningaskip sem hafa
flutt framleiðslu þess vítt og breitt um Evrópu og einnig í
Bandaríkjunum. Nú hefur fyrirtækið ákveðið að hætta útgerð
skipa sinna og einbeita sér að því að framleiða sement. Heyrst
hefur að skipin verði seld til Noregs og mönnuð ódýrari áhöfn-
um en yfir 40 danskir sjómenn munu missa vinnu sína. Hagn-
aður fyrirtækisins á síðasta ári var sögulegur eða um 222 millj-
ónir DKR. Það er ekki nema von að dönskum sjómönnum
svíði þegar svona er komið.
Sement á sjó
Við íslendingar höfum loksins séð að það eru fleiri sem selja
sement á íslandi en Sementsverksmiðjan á Akranesi. Aalborg
Portland er danskt sementsfyrirtæki sem hefur skotið rótum hér
(+1
SLYSflVflRNAFELAGlÐ
LflNDSBJÖRG
Sjómenn!
Við óskum ykkur til hamingju með sjómannadaginn.
Munið eftir því að tilkynna breytingar á símanúmerum
til Tilkynningaskyldunnar.
Hörmulegt slys varð þegar loka brast í þurrkví í Dubai.
Hörmulegt slys
Talið er að 34 hafi látist þegar loka í þurrkví i Dubai brast.
Þurrkvíin, sem er númer tvö, getur tekið allt að 1 milljón tonna
og voru í henni fjögur skip og einn borpaflur þegar slysið
varð. Talið er að á milli 2 og 500 manns hafi verið að
vinna í kvínni þegar slysið varð og sluppu margir á ótrú-
legan hátt út úr kvínni. Ástæða þess að lokan brást var sú
að prammi hafði lent utan í lokunni og stóð yfir viðgerð á
henni þegar slysið varð.
Risarnir koma aftur
Fyrsta ULCC olíuskipið sem smíðað hefur verið í 20 ár
hefur nýlega verið afhent eigendum sínum. Skipið
Hellespont Alhambra á ekki glæsta siglingadaga framund-
an en markaður fyrir svo risastór olíuflutningaskip er
mjög erfiður um þessar mundir en ULCC eru skip sem
eru stærri en 350.000 tonn að stærð. Það þykir all sér-
stakt í þessu máli að leigutakinn Chevron Texaco borgar
fyrir skipið 21 þúsund dollara á dag en rekstur og afborg-
anir af skipinu er á milli 40 og 50 þúsund dollarar. Um
þessar mundir er verið að afhenda útgerðinni systurskip
sem er annað í röðinni af fjórum sem verið er að smíða.
Þetta mætti kalla bjartsýnismenn í útgerð.
C^enuum siomonnum oy
(f/ölskijlditm (oeiua bestu
kveð/uv á
omanna-
'inn
Vagnhöfða 10 - Sími: 567 3175
GSM: 897 5741 - Fax: 587 1226
50 - Sjómannablaðið Víkingur