Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 52

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 52
1. mynd. Dœmigerð tildurmosaþemba. Myndin er tekin í þurrki, en þá er mosinn nánast gulbrúnn að lit. Ljósm. Hörður Kristinsson. Sjálfsagt þykir ýmsum nafnið „tildurs- legt“, en það lýsir þessari mosategund á skemmtilegan hátt og venst ekki síður en önnur. Þess má geta að viðurnafnið splendens er latneskt lýsingarorð sem merkir lýsandi eða glansandi (samstofna enska orðinu splendid) og vísar til glans- andi áferðar blaðanna. Gamla viðurnafnið proliferum merkir hins vegar bara greinóttur. Heitið „skógatildri“ reyndist óþarft því stuttu síðar var ættkvíslinni skipt, svo að til hennar heyrir nú aðeins tegundin H. splendens, sem situr þá ein að kvíslarnafninu. ■ NYTJAR Björn Halldórsson ritar: „Stóri engjamosinn má brúkast fyrir tróð, og lfka má stappa með honum á milli þils og veggja í húsum, so að fyllist allar gáttir; það gjörir hita, og ver slaga.“ Oddur Hjaltalín segir um notkun H. proliferum: „Mosa þennan má brúka í dýnur, og að troða í rifur á þilhúsum.“ A sænsku kallast þessi tegund „husmossa", sem vísar til þessarar notkunar hans, einkum við að þétta samskeyti í bjálkahúsum. Nú er þessi nýting mosans úr sögunni, en hins vegar er hann ennþá töluvert notaður til að pakka meðfram rótum plantna sem flytja þarf lengra til, því hann heldur vel í sér hæfilegum raka. Meðan skógræktarstöðv- arnar seldu „berrótarplöntur“ úr beðum var þeim oftast pakkað með tildurmosa, sem tíndur var sérstaklega í þeim tilgangi og var það á Hallormsstað kallað „að fara í mosa- skóg“. Þá er tildurmosi notaður í ýmiss konar skreytingar með blómum eða trjá- greinum og hentar vel til þeirra hluta. ■ LÝSING MOSANS Tildurmosi myndar gulgrænbrúnan, laus- legan eða allþéttan, bólsturlaga llóka eða þekju (þembu), sem stundum er ógreinilega lagskipt, og getur orðið allt að 20 sm á þykkt, en þá er neðri hlutinn oftast bara dauðir 50

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.