Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 70
Fréttir
VÍSINDIN í ÞJÓNUSTU RÉTTVÍSINNAR
í fylgiriti með New Scientist 4. október 1997 er fjallað um ýmsar vísindaaðferðir sem standa
rannsóknalögreglusveitum nútímans til boða. í einni grein í ritinu er greint frá því hvernig
komið var upp um þjófnað á tölvum. Framleiðandi í Texas sendi allstóra sendingu af tölvum
til Argentínu. En þegar kaupandinn opnaði kassana komu í ljós lileðslusteinar úr steinsteypu
í stað vélbúnaðarins. Ófrómir menn höfðu einhvers staðar á leiðinni skipt á upphaflegu
innihaldi umbúðanna og múrsteinum.
Yfirvöld fengu sér til liðsinnis Skip Palenik, en hann þykir einn fremsti sérfræðingur heims
í greiningu á snefilefnum á stöðum þar sem afbrot hafa verið framin og stýrir nú fyrirtæki á
þessu sviði í Illinois. Þar eru að sjálfsögðu fullkomnar smásjár og önnur rannsóknatæki sem
gagnast mega í baráttunni við bófana, en auk þess hefur Palenik dregið saman víða að safn
sýna af jarðvegi, plöntum, frjókornum, trefjum, málningu, viði, pappír og öðru sem nýtist
honum við að rekja slóð glæpamanna.
Steinsteypa er þannig gerð að blandað er sementi og vatni við sand og möl eða önnur
jarðefni sem yfirleitt eru fengin nærri upprunastað steypunnar. Palenik komst að þvf að
sandkornin í steyptu klossunum voru öll af svipaðri stærð. Þetta er einkenni á fjörusandi, þar
sem bylgjurnar raða sandkornunum eftir stærð. Sandur innan úr landi er yfirleitt úr mjög
misstórúm kornum.
Við það bættist að rafeindasmásjárskoðun á sandkornunum í steypunni leiddi í ljós
þrístrend för eins og koma fram þar sem brim rótar saman sandkornum. Ljóst þótti því að
sandurinn í steypuna hefði verið sóttur í fjöru. En hvar?
Efnagreining leiddi í Ijós að sandurinn var trúlega mylsna úr myndbreyttu bergi, og grein-
ing á samsetningu slíks bergs sem olíufélög höfðu látið vinna fyrir miðja þessa öld benti
eindregið til þess að sandurinn væri fenginn úr sunnanverðu Flórída.
Vitað var að tölvusendingin hafði farið um flugvöllinn í Miami á leið til Argentínu, og viti
menn: Steyptir hleðslusteinar, nákvæmlega eins og látnir voru í staðinn fyrir tölvurnar,
fundust á byggingarsvæði á fjugvellinum.
Með allri þessari vitneskju tókst lögreglunni fljótlega að fletta ofan af þjófagengi þar sem
meðal annarra störfuðu menn er unnu að farangurshleðslu á flugvellinum.
Örnólfur Thorlacius endursagði.
BINDINDISSÖM BÍLTÖLVA
Samsung í Kóreu hefur hannað bíltölvu sem hefur vit fyrir blautum bílstjórum. I mælaborði
bifreiðarinnar er raddgreinir sem tekur við skipunum frá ökumanni, svo sem “Farðu í gang”. I
minni tölvunnar er geymt sýni af rödd mannsins sem hann hefur lesið allsgáður. Þegar hann
ávarpaj' kerfið ber það ávarpið saman við þetta sýni og leitar að drafi í röddinni. Ef allt er í lagi
ræsir tölvan bílinn. En ef ekillinn greinist drukkinn minnir talgervill hann á skaðsemina af
ölvunarakstri. Og bíllinn fer ekki í gang fyrr en runnið er af manninum.
New Scientist 6.6.1998.
Örnólfur Thorlacius tók saman.
68