Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 71
Skýrsla
um Hið íslenska
NÁTTÚRUFRÆÐIFÉLAG
FYRIRÁRIÐ 1996
FREYSTEINN SIGURÐSSON
Samkvæmt lögum Hins íslenska
náttúrufrœðifélags skal formaður
félagsins birta skýrslu um starf-
semi þess í Náttúrufrœðingnum.
■ FÉLAGAR
Félagar og áskrifendur að Náttúrufræðingn-
um voru 1.523 í árslok 199(A)g hafði fækkað
um 52 á árinu. Er þetta bakslag í félagafjölda
frá tveimur síðustu árum. Heiðursfélagar
voru 10 og kjörfélagar 6 og var fjöldi hvorra
tveggju óbreyttur. Ævifélagar voru 14 og
hafði fækkað um 1 á árinu. Almennir félagar
innanlands voru 1.139 og hafði fækkað um
61 á árinu. Alls létust 8 félagar á árinu, 43
sögðu sig úr félaginu, en 66 voru strikaðir út
af félagaskrá vegna vanskila. Á árinu gengu
65 nýir félagar í HÍN, þar af 23 svokallaðir
skóla- eða ungmennafélagar. Skólafélagar
voru 124 og hafði fjölgað um 9 á árinu.
Félagar og stofnanir erlendis voru 69.
■ STJÓRN OG
STARFSMENN
Á aðalfundi HÍN, 17. febrúar 1996, baðst
Ingólfur Einarsson, gjaldkeri félagsins,
Freysteinn Sigurðsson (f. 1941) lauk Diplomprófi
í jarðfræði frá Háskólanum í Kiel í Þýskalandi árið
1974. Freysteinn hefur starfað hjá Orkustofnun æ
síðan, einkum við grunnvatnsrannsóknir, neyslu-
vatnsrannsóknir og jarðfræðikortlagningu. Hann
hefur verið formaður Hins íslenska náttúrufræði-
félags frá 1990.
undan endurkjöri en hann hafði þá gegnt
því embætti frá árinu 1968. Á árunum 1906-
1941 og 1946-1996 (samtals 85 ár) voru
aðeins fjórir menn gjaldkerar HÍN og
Ingólfur þó lengst, eða 28 ár. Eru slíkur
áhugi og elja ómetanleg félaginu. í hans
stað var kjörinn Kristinn Albertsson, jarð-
fræðingur. Aðrir fráfarandi stjórnarmenn
voru endurkjörnir. Stjórn félagsins 1996 var
skipuð sem hér segir: Formaður Freysteinn
Sigurðsson, varaformaður Hreggviður
Norðdahl, ritari Þóra Elín Guðjónsdóttir,
gjaldkeri Kristinn Albertsson, meðstjórn-
andi Sigurður S. Snorrason. Varamenn í
stjórn voru Helgi Guðmundsson og Hilmar
J. Malmquist. Endurskoðendur voru Tómas
Einarsson og Kristinn Einarsson, sem var
kjörinn í stað Sveins Ólafssonar en hann
baðst undan endurkjöri eftir langt starf.
Varaendurskoðandi var Arnór Þ. Sigfússon.
Fulltrúi HIN í Dýraverndarráði var
Sigurður H. Richter, en hann baðst í febrúar
undan frekari setu eftir langt starf og var í
hans stað tilnefndur Páll Hersteinsson,
dýrafræðingur og prófessor. Fulltrúar HÍN á
opinberum þingum og samkomum voru sem
hér segir: Skipulagsþing (01.11.1996): Frey-
steinn Sigurðsson; aðalfundur Land-
verndar (02.11.1996); Þorleifur Einarsson;
hálendisráðstefna FÍ (02.11.1996); Frey-
steinn Sigurðsson; umhverfisþing (08.-
09.11.1996); Freysteinn Sigurðsson.
Framkvæmdastjóri HÍN var Guttormur
Sigbjarnarson og útbreiðslustjóri Erling
Ólafsson. Framkvæmdastjóri sá um dag-
legan rekslur félagsins, ýmisleg erindi á
þess vegunt, undirbúning stjórnarfunda,
Náttúrufræðingurinn 68 (1), bls. 69-76, 1998.
69