Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 73

Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 73
Skýrsla formanns Formaður félagsins, Freysteinn Sigurðsson, flutti skýrslu um starfsemi félagsins á árinu 1996. Nokkur fækkun varð í félaginu á árinu og er það líklega að einhverju leyti tengt töfum sem urðu á útgáfu Náttúrufræðings- ins, en hann er nánast það eina gagn sem þorri félagsmanna hefur af þátttöku sinni í félaginu. Þó kemur þar einnig til síaukið framboð á allskonar fræðsluefni um náttúru- fræði og náttúruskoðun utan félagsins, auk stóraukins framboðs á skemmtan og afþreyingu, jákvæðu félagsstarfi og öðru því sem skilur eftir færri tómstundir hjá almenningi fyrir þátttöku í HÍN. Starfsemi félagsins var annars með hefðbundnu sniði. Fræðslufundir og fræðsluferðir hafa mælst mjög vel fyrir hjá þeim sem þeirra hafa notið. Bóksala félagsins hefur dregist saman og tilraunir HÍN til að greiða fyrir útgáfu náttúrufræðilegs fræðsluefnis með því að koma á samvinnu stofnana og fagfélaga mættu ótrúlega víða áhugaleysi, þó undir- tektir væru mjög góðar hjá nokkrum aðilum. Fjárhagur félagsins var nokkuð þröngur og setti það starfseminni vissar skorður, auk þess sem æ minni tími er aflögu hjá mörgum til sjálfboðastarfa fyrir félagið, m.a. af ástæðum sem fyrr eru greindar. HÍN hefur tekist á undanförnum árum að skapa sér vissan sess og gott orð margra í umfjöllun um unthverfis- og náttúru- verndarmál, með einarðri og öfgalausri afstöðu sinni. Náttúra landsins hefur verið umfjöllunarefnið og aukin þekking á henni, aukin almannafræðsla um hana og umfjöllun um nýtingu hennar og vernd á náttúrufarslegum forsendum hafa verið viðmiðanir félagsins. Skynsamleg og rökstudd náttúruvernd hefur verið markmið, en nýtingu auðlinda náttúrunnar ekki heldur verið hafnað, meðan sú nýting er innan hóflegra marka og stunduð af skynsemi, með eðlilega og æskilega varðveislu og mótun náttúru landsins að leiðarljósi. Þessi hófsömu skynsentis- viðhorf virðast njóta sívaxandi fylgis í þjóðfélaginu, á kostnað öfgahyggju í hvora átlina sem er, lil arðránshyggju eða ofur- verndar. Því er ekki ástæða til annars fyrir HIN en að fylgja áfram markaðri stefnu á þessari braut. Reikningar félagsins Gjaldkeri félagsins, Kristinn Albertsson, kynnti reikninga félagsins fyrir árið 1996 og voru þeir samþykktir án athugasemda. Gjaldkeri upplýsti að framsetning reikninga félagsins væri nú nokkuð breytt frá því sem áður var, í samræmi við breyttar kröfur. Velta félagsins var tæpar 5 millj. kr., fé í sjóði tæpar 3 millj. kr., eignir umfram skuldir (að meðtöldum útistandandi kröfum og metnum birgðum) rúmlega 5 millj. kr. og rekstrar- afgangur án fjármagnsliða um 1 millj. kr. Á það er að líta að verulegt fé er í raun bundið vegna óútgefinna hefta af Náttúru- fræðingnum og því ekki frjálst til ráð- stöfunar. Fjárhagur félagsins er því nokkuð þröngur, þó að hvergi nærri verði hann kallaður slæmur. Árgjald var 3.300 kr. fyrir einstaklinga, árgjald hjóna var 3.900 kr. og árgjald ungmenna að 23 ára aldri (skóla- félagaárgjald) 2.200 kr. Dýraverndarrád Fulltrúi HÍN í Dýraverndarráði, Páll Her- steinsson, gat ekki mætt á fundinn og var því skýrslu hans frestað án mótmæla fundarmanna. Stjórnarkjör Úr stjórn áttu að ganga Hreggviður Norðdahl (varaformaður) og Sigurður S. Snorrason (meðstjórnandi). Hreggviður gaf kost á sér til endurkjörs en Sigurður ekki. I hans stað stakk stjórn HIN upp á Hilmari J. Malmquist. Voru þeir Hreggviður og Hilmar kjörnir án mótatkvæða. Að tillögu stjórnar HÍN var Helgi Guðmundsson endurkjörinn sem varamaður í stjórn og með honum kjörin sem varamaður Hólmfríður Sigurðardóttir. Endurskoðendur voru að tillögu stjórnar endurkjörnir Tómas Einarsson og Kristinn Einarsson og Arnór Þ. Sigfússon sem vara- endurskoðandi. ÖNNUR MÁL Fram voru lagðar átta tillögur til ályktunar frá stjórn HIN. Urðu nokkrar umræður um 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.