Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 76
Háskólans, eins og verið hefur um langt
árabil. Haldnir voru sex íundir. Fundarsókn
var að meðaltali tæplega 60 manns, sem er
nokkru minna en 1995, en þá var fundarsókn
með almesta móti. Fyrirlesarar og erindi voru
sem hér segir:
29. janúar: Magnús Már Magnússon jarð-
eðlisfræðingur: Um snjóflóð og
snjóflóðavarnir. Fundinn sóttu 59 manns.
26. febrúar: Hallgerður Gísladóttir sagn-
fræðingur: Eldun - matur - náttúra. Fundinn
sóttu 72 manns.
25. mars: Kristján Geirsson jarðfræðingur:
Fagradalsmegineldstöðin í Vopnafirði.
Fundinn sóttu 60 manns.
29. apríl: Gunnar Freysteinsson skóg-
fræðingur: Vaxtarhraði nokkurra trjátegunda
á Islandi. Fundinn sóttu 42 manns.
28. október: Hólmfnður Sigurðardóttir líf-
fræðingur og Þóroddur F. Þóroddsson
jarðfræðingur: Mat á umhverfisáhrifum.
Fundinn sóttu 40 manns.
25. nóvember: Oddur Sigurðsson jarð-
fræðingur: Jöklar taka á rás. Fundinn sóttu
69 manns.
Fundir þessir voru kynntir í dagskrám
dagblaða og útvarps og kann HIN fjöl-
miðlum þessum bestu þakkir fyrir þann
greiða. Háskóla Islands er þakkað fyrir greið
afnot af fyrirlestrasalnum í Odda og húsráð-
endum þar fyrir vandaða þjónustu við
undirbúning funda.
■ FRÆÐSLUFERÐIR OG
NÁMSKEIÐ
Farnar voru fjórar ferðir, þar af þrjár í
samvinnu við Ferðafélag íslands. Fyrir-
huguð sólstöðuferð féll niður vegna
forsetakosninga, sem voru samtímis. Langa
ferðin var farin 25.-28. júlí á Strandir og í
Isafjarðardjúp. Þátttaka í ferðum var svipuð
og árið áður. Leiðbeinendur voru alls níu í
þessum ferðum, auk fararstjóra. Auk þess
voru haldin tvö námskeið um náttúrufræði
en eitt fyrirhugað námskeið féll niður.
Þátttaka í ferðunum var viðunandi og þóttu
þær almennt takast vel. Leiðsögumönnum er
þakkað fyrir góðan undirbúning og ljósa
kynningu. Guðmundi Jónassyni hf. og
bílstjórum fyrirtækisins er þakkað fyrir
sérstaka lipurð og umhyggju við að flytja
þátttakendur í ferðunum. Einnig vill HIN
þakka fyrir ágætar móttökur og fyrirgreiðslu
á gisti- og áfangastöðum.
Fuglaskoðunarferð um Reyk/anesskaga
Laugardaginn I 1. maí var farin fugla-
skoðunarferð um Reykjanesskaga í sam-
vinnu við Ferðafélag Islands, sem sá um
ferðina. Leiðbeinendur voru þeir Gunn-
laugur Pétursson og Hallgrímur Gunnars-
son. Þátttakendur voru 13 talsins.
Langa ferðin um Strandir og Inn-Djúp
Þessu sinni var farið um Strandir og Inn-
Djúp. Lagt var upp frá Umferðarmiðstöðinni
í Reykjavík kl. 9 fimmtudaginn 25. júlí á
einum stórum og góðum langferðabíl frá
Guðmundi Jónassyni hf. Veður var fremur
svalt þennan dag, lítið yfir I0°C, og skýjað
með skúrum norður yfir Holtavörðuheiði.
Norður Strandir var hægviðri og bjartviðri
með köflum, en helliskúr gerði um kvöldið,
eftir að komið var í áfangastað. Staldrað
var í Borgarnesi en hádegishlé var hjá Brú
í Hrútafirði. Þaðan var farið út á Borðeyri,
fjallað um myndun hennar og landmótun í
Hrútafirði, auk þess sem gengið var um
gamla verslunarstaðinn. Áfram var haldið
og staldrað á Stikuhálsi (Víkurhálsi), þar
sem útsýnis var notið, en þaðan var farið
að Ospakseyri. Eftir staðarskoðun var
haldið áfram og kaffihlé tekið í góðviðrinu
á Gálmaströnd. Síðan var farið að
Húsavíkurkleif og surtarbrandslögin
skoðuð. Staldrað var stutt á Hólmavík en
svo farið inn fyrir Steingrímsfjörð og út
Selströnd. Þar var komið við í Hveravík
(Reykjarvík) og skoðaðir hverir og hvera-
gróður í flæðarmáli. Áfram var haldið
gegnum Drangsnes og yfir hálsa í
Bjarnarfjörð, en jökulmótun lands var lýst á
leiðinni. Komið var um kl. 9 um kvöldið að
Laugarbóli í Bjarnafirði og þar tekin gisting
til tveggja nátta. Skoðuðu margir umhverfið
um kvöldið, en þarna eru kvistlendi fögur,
sléttir og grónir bakkar við Bjarnarfjarðará,
snöruð jarðlög og misgengi í berggrunni og
74